Frábær árangur knapa á Hólamóti
Mette og Vívaldi í keppni í Meistaradeild KS en þau hlutu frábæra einkunn í gæðingaskeiði um helgina
Hólamótinu – íþróttamóti UMSS og Skagfirðings er nú lokið en óhætt er að segja að einkunnir og árangur knapa bæði í hringvallar-og skeiðgreinum hafi verið frábær.
Mette Mannseth vann sigur í þremur greinum í Meistaraflokki. Í fjórgangi á Skálmöld frá Þúfum með 7,60 í einkunn, slaktaumatölt á Blundi frá Þúfum með 7,92 í einkunn og í gæðingaskeiði náði hún í fágæta einkunn á Vívaldi frá Torfunesi, 8,42.
Þórarinn Eymundsson var efstur í fimmgangi meistara á Vegi frá Kagaðarhóli með 7,68 í einkunn og Magnús Bragi Magnússon og Óskadís frá Steinnesi unni keppni í tölti meistara með einkunnina 8,22.
Í skeiðgreinum náðust góðir tímar og heldur Jóhann Magnússon á Fröken frá Bessastöðum áfram að fara með sigur úr býtum, líkt og í Meistaradeild KS um daginn. Í þetta skiptið fór hann 100 metrana á 7,62 sekúndum. Í 250 metra skeiði var það Konráð Valur á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu sem var fljótastur á tímanum 22,36. Þórarinn Eymundsson og Gullbrá frá Lóni voru svo fljótust í 150 metra skeiði á tímanum 14,74 sekúndum.
Auk áðurnefndra sigra náðu margir aðrir knapar góðum árangri en heildarniðurstöður mótsins má lesa hér fyrir neðan.
Heildarniðurstaða frá Hólamóti
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum