Frábærir stóðhestar á Selfossi í dag sunnudag, kl. 14
Stóðhestadagur Eiðfaxa fer fram á félagssvæði hestamannnafélagsins Sleipnis á Brávöllum á Selfossi í dag og hefst dagskrá kl. 14.
Hátíðin er hugsuð sem vettvangur til að kynna marga af bestu stóðhestum landsins fyrir áhugasömum ræktendum.
Auk kynninga og sýninga eftirfarandi ungum stóðhestum verður boðið upp á kennslusýningu með Þorvaldi Árna Þorvaldssyni reiðkennara í reiðhöll Sleipnis.
Þá verða Gári frá Auðsholtshjáleigu, Víðir frá Prestsbakka og Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði til sýnis inn í reiðhöll félagsins og geta gestir og gangandi virt þessa myndargripi fyrir sér.
Stóðhestadagurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis.
Dagskrá dagsins:
1. Böðvar frá Tóftum kn. Hallgrímur Birkisson og Ögri frá Kirkjuferjuhjáleigu kn. Trausti Þór Guðmundsson.
2. Vaðall frá Akranesi kn. Karen Líndal og Sproti frá Sauðholti kn. Sigursteinn Sumarliðason.
3. Hljómur frá Túnsbergi Sigurður V Mattíasson – Bragur frá Túnsbergi Bragi Viðar Gunnarsson.
4. Kjarkur frá Melbakka kn. Bjarni Sigurðsson og Guðberg frá Skagaströnd Ólafur Andri.
5. Stæll frá Neðra-Seli kn. Viggó Sigursteinsson og Lektor frá Ytra-Dalsgerði kn. Kristinn Hugason.
6. Muggur frá Hárlaugsstöðum kn. Sigurður V Mattíasson og Ómur frá Kirkjuferjuhjáleigu kn. Trausti Þór Guðmundsson.
7. Lómur frá Stuðlum kn. Þorvaldur Árni Þorvaldsson, Árvakur frá Auðsholtshjáleigu kn. Þórdís Erla Gunnarsdóttir og Jarl frá Árbæjarhjáleigu kn. Marjolijn Tiepen.
8. Geisli frá Svanavatni kn. Sigursteinn Sumarliðason og Geysir frá Sperðli, kn. Árni Sigfús Birgisson.
9. Sýnikennsla í reiðhöllinni: Þorvaldur Árni og Svartnir frá Miðsitju.
Hlé
10. Stjarni frá Skeiðháholti kn. Karen Líndal og Ketill frá Kvistum kn. Hulda Gústavsdóttir Gjafar frá Hvoli kn. Þorvaldur Árni Þorvaldsson.
11. Hringur frá Fossi Sigurður Mattíasson og Möller frá Blesastöðum Helga Una Björnsdóttir.
12. Afkvæmi Víðis frá Prestsbakka (Víðir verður sjálfur til sýnis inn í reiðhöllinni):
i. Mörk frá Hárlaugsstöðum kn. Lena Zelinski
ii. Muggur frá Hárlaugsstöðum kn. Sigurður V Mattíasson
iii. Óskar frá Hvítárholti kn. Súsanna Ólafsdóttir
13. Þóroddur frá Þóroddsstöðum með afkvæmum:
i. Grunnur frá Grund kn. Sigursteinn Sumarliðason
ii. Hilda frá Kvistum. Kn. Kristjón Kristjánsson
iii. Gjöf frá Vindási kn. Brynjar Jón Stefánsson
iv. Elding frá Laugarvatni kn. Bjarni Bjarnason
v. Hvatur frá Dallandi kn. Atli Guðmundsson
vi. Dalvar frá Horni kn. Ómar Ingi Ómarsson
14. Kiljan frá Steinnesi, kn. Þorvaldur Árni Þorvaldssonog Þröstur frá Hvammi Vignir Siggeirsson.
15. Ómur frá Kvistum kn. Hinrik Bragason
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH