Fræðsluerindi um byggingadóma hrossa

  • 11. apríl 2024
  • Fréttir

Hersir frá Húsavík í byggingardómi árið 2022 í hann heldur Eyrún Ýr Pálsdóttir

Fræðslunefnd Hestamannafélagsins Geysis stendur fyrir erindu um byggingadóma í Skeiðvangi á Hvolsvelli laugardaginn 13. apríl klukkan 10.

Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur mun halda erindið en farið verður yfir byggingu nokkurra ólíkra hrossa á staðnum sem og að tekið verður spjall um byggingadóma.

Frítt er á viðburðinn fyrir Geysisfélaga.

Vinsamlegast tilkynnið mætingu í s: 8977076 eða á netfangið hmfgeysir@gmail.com

Fræðslunefnd Geysis

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar