Fræðslufyrirlestur Funa
Fimmtudagskvöldið 1. desember verður fræðslufyrirlestur Funa haldinn að Funaborg kl. 20:30, húsið opnar kl. 20:00.
Að þessu sinni verður það Brynjar Skúlason bóndi í Hólsgerði sem mun fjalla um BSc ritgerð sína í hestafræðum. Ritgerðin ber heitið Vöxtur og þroski íslenska hestsins og mun Brynjar fjalla um:
- Hvernig hestar vaxa eftir mismunandi skrokkhlutum
- Árstíðabundnar sveiflur í vexti
- Áhrifaþætti vaxtar (fóðrun, erfðir, steinefni ofl.)
- Hvernig íslenski hesturinn hefur stækkað undanfarin ár
- Frekari rannsóknir ofl.
Gunnbjörn Rúnar Ketilsson mun svo vera með kynningu fyrir áhugasama á Forever Living vörunum. eftir fyrirlesturinn. En vörurnar hafa reynst vel við hinum ýmsum kvillum hesta.
Frítt er inn á fyrirlesturinn og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni.
Allir velkomnir
Fræðslunefnd Funa
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH