Fræðslukvöld Hólanema
„Bústólpahöllin í Húsavík hefur nýlega verið reist og þess vegna ætla þær Malin Jansson, Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir og Christina Mai, þriðjaársnemar á Hólum, að halda fræðslukvöld þar og kynna fjölbreytta og uppbyggilega þjálfun reið- og keppnishesta.
Eftir stuttan fyrirlestur sem fjallar meðal annars um markmiðasetningu fyrir mismunandi hesta og uppbyggilega líkamsbeitingu reiðhesta, verður haldin sýnikennsla sem sýnir leiðir til árangsríkrar þjálfunar reið- og keppnishesta.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing