Fræðslukvöld með Ingimari Sveinssyni
Næstkomandi föstudagskvöld mun Ingimar Sveinsson á Hvanneyri vera með fyrirlestur og sýnikennslu að Sörlastöðum í Hafnafirði.
Um langt skeið hefur Ingimar Sveinsson á Hvanneyri haldið helgarnámskeið þar sem hann bæði segir frá og sýnir hvernig hann nálgast ósnerta hesta. Hann hefur kallað þessa nálgun „Af frjálsum vilja“.
Aðferðin hefur vakið mikla athygli og nú gefst áhugasömum hestamönnum færi á að sjá og heyra Ingimar beita þessari aðferð.
Á föstudagskvöld kl. 19 mun hann halda stuttan fyrirlestur um aðferðir sínar auk þess sem hann mun nálgast algjörlega ósnertan fola og sýnir áhorfendum hvernig hann nálgast unghross samkvæmt sínum aðferðum.
Aðgangseyrir á fræðslu Ingimars er 1.500 kr. og veitingar verða til sölu að Sörlastöðum á meðan á fyrirlestrinum stendur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH