Framboð til aðalstjórnar LH

  • 1. nóvember 2022
  • Fréttir
Þórhildur Katrín Stefánsdóttir úr hestamannafélögunum Hornfirðingi og Glampa

Þórhildur Katrín Stefánsdóttir er formaður Glampa og býður sig fram til stjórnar Landsamband hestmannafélaga

Ég heiti Þórhildur Katrín Stefánsdóttir og er formaður Glampa nýstofnaðs hestamannafélags á Djúpavogi. Hestamannafélagið Glampi stendur nú í viðræðum við sveitarfélagið Múlaþing og heimastjórn gamla Djúpavogshrepps um úthlutun á lóð undir félagshúss og félagssvæði.

Ég kynntist hestamennsku snemma á barnsaldri og þá fyrst þegar ég var í sveit hjá móðurbróður mínum. Ég stundaði síðar hestamennsku í hestamannafélaginu Herði og þangað til að við fjölskyldan ákváðum fyrir rúmum tveimur árum að flytja á sveitabæ við Djúpavog með það í huga að búa í sveit og rækta hross. Við erum meðlimir í hestamannafélaginu Hornfirðing sem er frábært hestamannafélag með gríðalega sterkt æskulýðsstarf en í ljósi fjarlægða og mikils áhuga Djúpavogsbúa á hestamennskunni var tímabært að byggja upp hestamannafélag á Djúpavogi. Þá hefur hestaeigendum á Djúpavogi fjölgað síðustu tvö ár enda hestamennska bráðsmitandi íþrótt.

Ég er lögmaður að mennt og starfa sem verkefnastjóri hjá Múlaþingi. Ég hef mikinn áhuga á nýliðun og æskulýðsstarfi í hestamennsku. Ég hef áhuga á uppbyggingu félagshúsa hjá hestamannafélögum og öllu því sem tengist því að auka og auðvelda aðgengi almennings að hestamennsku. Þá hef ég einnig mikinn áhuga á öryggismálum og tryggingamálum í tengslum við hestamennsku.

Ég tel að reynsla mín af félagsstörfum, stjórnarsetu í íþróttafélögum og starfsreynslu geta nýst til stjórnarsetu hjá Landssambandi

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link