Framboð til aðalstjórnar LH
Ég heiti Sveinn Heiðar Jóhannesson fæddur og uppalinn á Akureyri Hörgdælingur í báðar ættir móðir mín fædd og uppalinn á Skriðu í Hörgárdal og faðir minn fæddur og uppalinn á Vindheimum í Hörgárdal.
Ég kynntist íslenska hestinum á barnsaldri í Skriðu en þar var ég í sveit frá 7 ára aldri. Ég hef stundað hestamennsku alla tíð síðan.
Varðandi mín störf þá hef ég starfað hjá mörgum stórfyrirtækjum í stjórnunarstörfum sem Sölu og markaðsstjóri – Rekstarstjóri – Innkaupastjóri – Verkefnastjóri og starfa nú sem Framkvæmdarstjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Distro ehf.
Ég hef frá árinu 2004 starfað í nefndum hjá Hestamannafélaginu Sörla þá lengst af í mótanefnd en þar var ég formaður í 5 ár. Einnig í fræðslunefnd og nú síðustu ár í stjórn Hestamannafélagsins Sörla bæði sem meðstjórnandi og varaformaður.
Ég hef komið að undirbúningi nokkura Íslandsmóta einnig Gullmóta og sat í undirbúningsnefnd LH fyrir Landsmót 2012.
Ég vill leggja áherlsu á að efla menntun í hestamennsku efla nýliðun tel það forréttindi að allir sem vilja eigi kost á því að kynnast Íslenska hestinum bæði ungir sem aldnir, reiðvegamál hef ég komið mikið að gegnum stjórnarstörf mín hjá Sörla sem og vinnu við innleiðingu á reiðmennskuæfingum bæði fyrir börn og fullorðna. Félagshesthús tel ég að sé grunnur að aukinni aðsókn fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref og vilja prufa og tel að þar megi bæta vel í varðandi samstarf hestamannfélaga og sveitarfélaga.
Í mínum huga er hestamennska forvarnarmál ekki síst á þessum tímum sem börn eru fyrir miklu áreiti af öllum þessum snjalltækjum. Besta sem ég veit um sem sameinar fjölskylduna í útiveru og umhirðu dýra.
Ég tel að reynsla mín í félagsstörfum í þágu hestamennskunar muni nýtast til stjórnasetu hjá LH og bíð þess vegna fram krafta mína til vinnu með næstu stjórn LH.
Með fyrirfram þökk
Sveinn Heiðar Jóhannesson.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH