Framfallegur með öflugar gangtegundir
Í ár voru sýndir 118 hestar í flokki fimm vetra stóðhesta en efstur í flokknum er Draupnir frá Stuðlum. Í umsögn Þorvalds Kristjánssonar hrossaræktarráðunauts segir um hestinn: „Hafa íslenskir hrossaræktendur nú eignast að nýju hátt dæmdan og efnilegan kynbótahest, leirljósan að lit. Draupnir er undan Kiljan frá Steinnesi og góðhestamóðurinni Þernu frá Arnarhóli. Þetta er afar framfallegur og fótahár hestur, með hátt frambak, sterka yfirlínu og öflugar gangtegundir. Hann á eflaust eftir að eflast enn með auknum vöðvastyrk.“ Sá hestur sem stóð efstur í fimm vetra flokki á Landsmóti var aftur á móti Forkur frá Breiðabólsstað undan Fláka frá Blesastöðum og Orku frá Tungufelli, Kolfinnsdóttur. Forkur er glæsilegur hestur í byggingu, með mikinn léttleika í hreyfingum og er sérstakur útgeislunarhestur, enda með 9,5 fyrir fegurð í reið og vilja og geðslag. Þriðji er Trausti frá Þóroddsstöðum en hann hlaut hæstu hæfileikaeinkunn sem var gefin í þessum flokki 8,86 en hann er jafnvígur alhliðahestur. Í þessum flokki hlaut Finnur frá Ármóti hæstu einkunn fyrir sköpulag en hann hlaut 8,68 í einkunn. Í aðaleinkunn hlaut hann 8,32 en Finnur er undan Álffinni frá Syðri-Gegnishólum og Nist frá Ármóti.
AE Nafn Faðir Móðir
8.68 Draupnir Stuðlum Kiljan Steinnesi Þerna Arnarhóli
8.67 Forkur Breiðabólsstað Fláki Blesastöðum 1A Orka Tungufelli
8.64 Trausti Þóroddsstöðum Þröstur Hvammi Snót Þóroddsstöðum
8.56 Vökull Leirubakka Héðinn Feti Embla Árbakka
8.34 Hrókur Hjarðartúni Dagur Hjarðartúni Hryðja Margrétarhofi
8.46 Flygill Stóra-Ási Straumur Breiðholti, Gbr. Nóta Stóra-Ási
8.46 Goði Bjarnarhöfn Spuni Vesturkoti Gyðja Bjarnarhöfn
8.46 Álfgrímur Syðri-Gegnishólum Orri Þúfu Álfadís Selfossi
8.45 Bjarmi Bæ 2 Álffinnur Syðri-Gegnishólum Blika Nýjabæ
8.45 Árblakkur Laugasteini Ágústínus Melaleiti Áróra Laugasteini
8.45 Dropi Kirkjubæ Kiljan Steinnesi Dögg Kirkjubæ
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH