Framkvæmdastjóri Spretts

  • 28. ágúst 2024
  • Fréttir
Hestamannafélagið Sprettur auglýsir laust til umsóknar spennandi starf framkvæmdastjóra Spretts.

Hestamannafélagið Sprettur leitar að drífandi stjórnanda sem mun ásamt stjórn, yfirþjálfara og öflugum hópi sjálfboðaliða tryggja markvissa og metnaðarfulla starfsemi í félaginu.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í lifandi umhverfi þar sem reynir á leiðtogahæfileika, skipulagsfærni og metnað. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri Spretts og skal í þeim efnum fara eftir þeirri stefnu og fyrirmælum sem stjórn hefur gefið.

Starfshlutfallið er 50%.

Við leitum að aðila með framúrskarandi samskiptahæfni, leiðtogafærni og óbilandi áhuga á að byggja upp framúrskarandi félag með ungmennafélagsandann að leiðarljósi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Haldbær reynsla af stjórnun og rekstri
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Rík þjónustulund og drifkraftur
  • Hæfni til að miðla upplýsingum og veita stuðning í verkefnum
  • Góð tölvufærni og hæfni til að setja sig inn í nýja tækni
  • Þekking og áhugi á að setja sig inn í ólík verkefni
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla og þekking á íþróttastarfi er æskileg
  • Reynsla í notkun á  bókhaldskerfi væri kostur
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með daglegum rekstri og starfsemi Spretts
  • Stýring fjármála, áætlunargerð  og kostnaðareftirlit
  • Tekjuöflun og markaðssetning félagsins
  • Eftirfylgni með innleiðingu stefnu í samráði við stjórn og félagsmenn
  • Ábyrgð og umsjón með útleigu á eignum félagsins
  • Samskipti við stjórn félagsins, félagsmenn, fjölmiðla, opinbera aðila og hagsmunaaðilar
  • Innkaup, samningagerð og samskipti við styrktaraðila og birgja
  • Viðburða og verkefnastjórnun á vegum félagsins
  • Samskipti og utanumhald um nefndir félagsins
  • Þjónusta við félagsmenn og utanumhald um félagatal
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórn

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar