Framlengdur frestur til að bjóða í uppboðssæti
Ákveðið hefur verið að framlengja frestinum til að bjóða í uppboðssætin í 150m og gæðingaskeiði um einn dag. Hægt er að bjóða til kl. 12.00 á morgun, fimmtudaginn 6. apríl. Síðan verður dregið í rásröð í beinni útsendingu á Alendis kl. 12.00 á föstudaginn. Þetta er gert til að koma til móts við knapa þar sem aðstæður til æfinga voru erfiðar í byrjun vikunnar.
Skeiðmótið hefst svo stundvíslega kl. 13.00 laugardaginn 8. apríl á Brávöllum á Selfossi. Einnig verður hægt að fylgjast með beinni útsendingu á Alendis.is.
Stjórn Meistaradeildar Líflands
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH