Framlengdur skráningafrestur á Ísmót Hrings
Ákveðið hefur verið að framlengja skráningarfrest á Ísmóti Hrings til föstudagsins 11. febrúar kl. 12 er kemur fram í fréttatilkynningu frá hestamannafélaginu Hring
Keppt verður í Tölti og 100m skeiði báðir flokkar opnir. Skráning fer fram á heimasíðu félagsins. Veljið flipann „skráning“ í mót hægra meginn neðst í valstikunni.
Skráningargjald er 2000 kr. á fyrstu skráningu 1500 kr. á aðra skráningu per knapa. Skráningargjald skal greiða á reikning félagsins: kt. 540890-1029 rknr: 1177-26-175 – skýring nafn knapa fyrir föstudaginn 11. feb kl. 20.
Kvittun sendist á [email protected]. Aðstandendur keppninar vilja benda keppendum á að prenta út kvittun þar sem vandræði hafa verið með netfangið.
Mótið hefst á laugardag 12. febrúar kl. 13.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH