Frauke Schenzel með yfirburði í fjórgangi á World Tölt mótinu í Óðinsvéum
Frauke Schenzel er langhæst í fyrsta sæti eftir forkeppni í fjórgangi á Tígli frá Kronshof á WorldTölt2013 í Óðinsvéum. Mótið er einn stærsti árlegi vetrarviðburðurinn í keppni á íslenskum hestum. Frauke er með 7,80 í einkunn, en næsti keppandi Johanna Beuk á Merkur frá Birkenlund er með 7,13.
JENS EINARSSON:
Tígull er undan Andvara frá Fuglsang og Mörk frá Kronshof. Ættirnar eru að mestu skagfirskar en ekki mikið um þekkt nöfn ef fá eru taldir feðgarnir Glaður frá Ytra-Skörðugili og Sörli frá Sauðárkróki. Frauke og Tígull hafa verið í fremstu röð í fjórgangsgreinum undanfari tvö til þrjú ár og voru meðal annars í þriðja til fjórða sæti í fjórgangi á HM2011 í Austurríki.
Jahanna Beuk og Merkur hafa verið saman í keppni frá því 2011 og kepptu í tölti og fjórgangi á HM2011. Merkur er undan Leik frá Lækjarbotnum, Ófeigssyni frá Flugumýri, og Emmu frá Neunenfelde, Örvarsdóttur frá Uppsölum, Hervarssonar frá Sauðárkróki.
Søren Madsen er í þriðja sæti á Nemó frá Hlemmiskeiði 2 með 7,07. Nemó er undan hinum margfalda Íslandsmeistara í fjórgangi Suðra frá Holtsmúla og Jasmín frá Hlemmiskeiði 2, Dagsdóttur frá Kjarnholtum. Ræktandi Nemós er Snæbjörn Guðmundsson á Hlemmiskeiði 2. Til gamans má geta þess að Gestur Þórðarson á Kálfhóli á Skeiðum frumtamdi Nemó, en Gestur ræktaði og tamdi hinn fornfræga heimsmeistara í fjórgangi Örvar frá Kálfhóli, sem var Kolkuóssættaður stórkarl.
Vignir Jónasson er í þriðja sæti eftir forkeppnina á Braga frá Kópavogi með 7,00. Bragi er þekktur keppnishestur, byrjaði ferilinn á ístöltmótum á Íslandi á fimmta vetur undir hnakk hjá Hans Kjerúlf og var síðar keppnishestur hjá Tryggva Björnssyni. Haraldur Snjólfsson keppti á honum í fyrra og hitteðfyrra á meginlandinu.
Jóhann Skúlason er í fimmta sæti á Hnokka frá Fellskoti með 6,90. Þá er óþarft að kynna, heimsmeistarar í tölti frá því á HM2011. Jóhann er einnig í sjötta sætinu á Snugg frá Grundet Hus, sem er undan Hrynjanda frá Hrepphólum, eins og Hnokki, og Dáð frá Byrgisskarði, Smiðsdóttur frá Miðsitju.
Jafn Jóhanni í sjötta sætinu er Nils-Christian Larsen á Rey frá Dalbæ, sem þótti sigurstranglegur og líklegur í A úrslitin. Hann keppti einnig á Óskari frá Blesastöðum 1A, en þeir náðu ekki nema 17. sætinu að þessu sinni. Þórður Þorgeirsson á Maxa frá Blesastöðum 1A náði ekki inn í úrslit, er í ellefta sæti. Hann gæti þó dottið inn ef einhverjir draga sig til baka, sem gerist sjálfkrafa ef farið er eftir FIPO reglum, en bæði Frauke og Jóhann eru með tvö hross í A og B úrslitum eftir forkeppni.
Gamlar fjórgangshetjur, Jolly Schrenk á Kiljan frá Kranictal og Unn Krogen Aðalsteinsson á sínum nýja keppnishesti Hrafndyni frá Hákoti eru fyrir neðan miðju og Agnes Helga Helgadóttir á Gná frá Jakobsgården er í 18. sæti.
Í dag verður einnig keppt í slaktaumatölti (T2) og tölti (T1).
Tíu efstu í fjórgangi eftir forkeppni:
01: Frauke Schenzel – Tigull vom Kronshof 7,80
02: Johanna Beuk – Merkur vom Birkenlund 7,13
03: Søren Madsen – Nemó frá Hlemmiskeiði 2 7,07
04: Vignir Jónasson – Bragi frá Kópavogi 7,00
05: Jóhann Rúnar Skúlasson – Hnokki frá Fellskoti 6,90
06: Jóhann Rúnar Skúlasson – Snugg fra Grundet Hus 6,87
06: Nils-Christian Larsen – Reyr fra Dalbæ 6,87
06: Martin Rønnestad – Tígull frá Skáney 6,87
09: Frauke Schenzel – Óskadís vom Habichtswald 6,80
10: Steffi Svendsen – Háfeti fra Ågreneset 6,67
Sjá úrslit á heimasíðu World Tölt.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH