Frosti frá Hjaðartúni seldur
Arnhildur Helgadóttir og Frosti frá Hjarðartúni. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir
Stóðhesturinn Frosti frá Hjarðartúni hefur verið seldur úr landi, þetta segir í facebook tilkynningu á síðu Hjarðartúns. Nýjir eigendur eru Frey fjölskyldan í Sviss og fer Frosti til þeirra í haust að loknu keppnistímabili hér heima.
Frosti hefur verið á meðal bestu slaktaumatöltara landsins um nokkurt skeið og verið í A-úrslitum á nokkrum af sterkustu íþróttamótum hér á landi, ásamt knapa sínum Arnhildi Helgadóttur. Auk þess hafa þau verið áberandi í Meistaradeild Líflands þar sem þau hafa nóð góðum árangri.
Frosti er fæddur árið 2016 og er undan Sleipnisbikarhafanum Skýr frá Skálakoti og gæðingamóðurinni Hrund frá Ragnheiðarstöðum. Hlaut hann í hæsta kynbótadómi 8,56 fyrir sköpulag, 8,77 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,70.
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
Um 700 gestir á Æskan og hesturinn og frumkvöðlar heiðraðir
Skráning hafin á opið íþróttamót Spretts