Frumniðurstöður rannsókna á líkamlegu álagi kynbótahrossa
Góður rómur var gerður að erindi Guðrúnar J. Stefánsdóttur, lektors, sem kynnti frumniðurstöður rannsóknar á líkamlegu álagi á hross í kynbótasýningum á ráðstefnunni Hrossarækt 2012 í dag.
Markmið rannsóknarinnar var að meta líkamlegt álag á hross í hæfileikadómi á kynbótasýningum. Einnig að meta áhrif aldurs og kynferðis á álag á hrossin.
Gögnum var safnað í 2 vikur á kynbótasýningu á Hellu árið 2011 og voru grunnþættir hjá 271 sýningarhrossum s.s. líkamsþungi, hæð á herðar, holdastig metnar auk þess sem tekin voru tvö lítil blóðsýni úr hrossunum, fyrir og eftir hæfileikadóm. Þá var settur hjartsláttarmæli á hrossin og GPS tæki sem knapinn bar mældi vegalengd og hraða.
Fram kemur í frumniðurstöðum að hrossunum var að meðaltali riðið 1,9 km í upphitun og 2,9 km í hæfileikadómi eða samtals um 4,8 km. Upphitunartími var að meðaltali tæpar 18 mínútur og hæfileikatómur tók að meðaltali 9:38 mínútur.
Mjólkursýra sem mæld var eftir hæfileikadóm var há og vel yfir viðmiðunargildi sem notað er sem mælikvarði á mjólkursýruþröskuld. Meðaltal hjartsláttar í hæfileikadómi var 184 +/- 13 slög/mín. Það hversu hratt hrossunum var riðið hafði marktæk áhrif á meðalhjartslátt í hæfileikadómi og meðalmagn mjólkursýru eftir hæfileikadóm auk þess sem vegalengd í dómi hafði áhrif á magn mjólkursýru. Meðaltal hæsta hjartsláttar í hæfileikadómi var 224 +/- 9 slög/mín. Meðalhjartsláttur í 5 mínútna endurheimt var 113 +/-10 slög/mínútur. Við uppgjör gagnanna kom víða fram munur eftir kynferði en sjaldnar eftir aldri.
Samkvæmt niðurstöðum er lífeðilsfræðilegt álag hrossa sem fara í gegnum hæfileikadóm í kynbótasýningu mikið. Til samanburðar eru ákveðnir álagsþættir ekki ósvipað og þeir sem mælast hjá veðhlaupahestum (Thoroughbred) og keppnisbrokkurum (Standardbred) í keppni. Kemur fram í niðurstöðum að undirbúningur, þjálfun og endurheimt (niðurkæling) kynbótahrossa þarf að miða að því að þola slíkt álag.
Rannsóknin er hluti af doktorsverkefni Guðrúnar í þjálfunarlífeðlisfræði hrossa en verkefnið er unnið í samvinnu við marga aðila, t.d. sænska landbúnaðarháskólann í Uppsölum í Svíþjóð, tilraunastöð Háskóla Íslands á Keldum, hrossaræktarráðunaut Íslands, starfsmenn kynbótasýninga, knapa, aðstoðarmenn knapa og eigendur kynbótahrossa.
Margareterhof er selt
Átta hlutu gullmerki LH
Suðurlandsdeildin áfram á EiðfaxaTV
Heim í hlað – Ný þáttaröð á EiðfaxaTV