Frumtamningarnámskeið

  • 22. október 2012
  • Fréttir
Frumtamningarnámskeið

Frumtamning er það kallað þegar við tökum að okkur að fá hest sem ekkert kann nema það sem hann hefur lært í lífsbaráttunni, af umgengni sinni við aðra hesta og menn, frá því að vera verndaður af móður sinni, upp í það að staðsetja sig í virðingarröð hestasamfélagsins. Við þurfum að hafa þetta allt í huga þegar við nálgumst slíkan hest og byrjum frumtamninguna, reyna að lesa í hestinn, sál hans og eðli.

Í þessari námskeiðaröð verða kenndar aðferðir sem reynst hafa vel til árangurs við frumtamningu unghrossa. Unnið verður eftir viðurkenndum tamningaraðferðum sem byggja á vinnu út frá forsendum hestsins. Tvinnað verður saman aðferðum sem kenndar eru við Háskólann á Hólum sem og aðferðum, reynslu og þekkingu annarra. Þar á meðal reynum við að varpa ljósi á hvernig hesturinn skynjar umhverfið og hvernig hann hugsar. Sá sem vill verða góður þjálfari verður fyrst að læra að skilja hvernig hestur hugsar.  
 
Viðkomandi vinnur með eigin hest og verður kennt á föstudögum (15:00-21:00), laugardögum og sunnudögum (09:00-16:00) í þrjár helgar  (með fyrirvara um breytingar). Kennslan verður blanda af verklegri þjálfun, einkatímum, sýnikennslu og fyrirlestrum.
 
Kennarar: Randi Holaker og Haukur Bjarnason, tamningamenn og reiðkennarar á Skáney í Borgarfirði.
 
Tímar: 2- 4. nóv., 16- 18 nóv. og 7- 9 des. Í Hestamiðstöð Lbhí á Miðfossum
 
Verð: 69.000 kr (Kennsla og aðstaða fyrir hross yfir verklegar helgar).
 
Skráningar:  [email protected]  eða í síma 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími).
 
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 20.000 kr (óafturkræft) á reikninginn 354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda staðfestingu á netfangið [email protected]
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link