FT gefur út kynningarbækling
Félag tamningamanna stefnir á að gefa út bækling til kynningar á félaginu og meðlimum þess sem m.a. verður dreift á landsmótinu í sumar og ætlar að því tilefni að uppfæra félagatalið.
„Bæklingurinn verður gefinn út í 5.000 eintökum og verður félagatal FT birt í honum. Þess vegna er mjög mikilvægt að allar upplýsingar séu réttar og uppfærðar, en félagatalið má sjá hér á heimasíðunni undir liðnum félagatal. Vinsamlega yfirfarið ykkar upplýsingar og sendið leiðréttingar og viðbætur á tölvupósti til FT á netfangið [email protected] fyrir 1. júní nk,“ segir í frétt frá Félagi tamningamanna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH