FT veitir reiðmennskuverðlaun

  • 6. júlí 2014
  • Fréttir
Gústaf, Teitur, Þórarinn og Árni Björn heiðraðir.

Félag tamningamanna heiðraði knapa fyrir góða reiðmennsku. Yngri knapinn sem hlýtur þessi verðlaun er Gústaf Ásgeir Hinriksson fyrir sýningu sína á Ás frá Skriðulandi í milliriðlum ungmennaflokks. Umsögn um Gústaf er svohljóðandi: ,,Gústaf er verðlaunaður fyrir einstaklega prúða og fagmannlega reiðmennsku.“

Teitur Árnason hlýtur viðurkenningu fyrir einstakt og létt samspil milli hans og Tuma frá Borgarhóli. 

Þórarinn Ragnarsson hlýtur viðurkenningu fyrir sýningu á Spuna í milliriðli þar sem hann sýndi topp afköst niður í úrvals fet. Þórarinn kom ríðandi á Þyt frá Efsta – Dal vegna anna hjá Spuna sem er farin að sinna hryssum. 

Árni Björn Pálsson hlýtur reiðmennskuverðlaun FT. Hann hlýtur þessi verðlaun vegna sýningar á Stormi frá Herríðarhóli sem er ein besta töltsýning allra tíma. Árnir Björn er kurteis í hvívetna og hefur fágað yfirbragð. Hross hans eru áverkalaus og eru sátt og þjál. Hann sýndi glæsilegan árangur á mótinu, bæði í kynbótadómi og gæðingakeppni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link