Landsamband hestamanna Fundaferð öryggisnefndar LH

  • 6. nóvember 2026
  • Fréttir

Jóhanna Þorbjörg, formaður öryggisnefndar LH og Halla Bergþóra Björnsdóttir, ríkislögreglustjóri. Myndir: Úr einkasafni.

Mikilvægi þess að samræma verklag þegar kemur að hestaslysum

Við hestamenn þurfum sífellt að huga að öryggismálum. Þótt íslenski hesturinn sé þekktur fyrir traust geðslag er hann fljótur, fimur og hefur þar að auki stækkað síðustu áratugi. Þar fyrir utan er hann víða brúkaður í miklu áreiti, svo sem í hesthúsahverfum þar sem öllu ægir saman – gangandi, hjólandi, ríðandi og akandi vegfarendum.

Gerð hefur verið gangskör að þessum málaflokki á vegum öryggisnefndar LH síðustu misseri, meðal annars með fundaferð hringinn í kringum landið. En hvað er það sem nefndin telur svo nauðsynlegt að breyta? Hafa hestamenn sofið á verðinum í þessum mikilvæga málaflokki?

Byrjuðu á að taka til heima fyrir

„Ég fór upphaflega inn í nefndina því ég vildi breyta því hvernig lögreglan rannsakaði hestaslys,“ segir Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir, fyrrum lögreglukona og núverandi formaður öryggisnefndarinnar. „Hestamennska er fjórða fjölmennasta íþrótt landsins en þegar við fórum að grúska meira í þessum málum kom í ljós að engin tölfræði var til um hestaslys. Raunar kom í ljós að engin „hestaslys“ voru til í lögreglukerfinu, hjá Neyðarlínu eða utanspítalaþjónustu. Hugtakið var hreinlega ekki til og því var auðvitað engin tölfræði.“

Þetta olli nefndinni áhyggjum enda erfitt að leggja áreiðanlegan mælikvarða á öryggismál ef engum gögnum er safnað. Þó er vitað að tíðni alvarlegra slysa tengd hestamennsku er mun hærri en í flestum öðrum íþróttagreinum og því ærin ástæða til að bregðast við ástandinu að mati nefndarinnar.

Fyrir tveimur árum fékk nefndin samþykkta viðbragðsáætlun á landsþingi LH. Síðan þá hefur ekki verið hægt að halda mót án öryggisfulltrúa. Breytingarnar hafa lagst vel í hestamenn, að sögn Jóhönnu.

„Við byrjuðum heima, litum í eign barm og gerðum breytingar. Næsta skref var að tala við viðbragðsaðila um viðbrögð og rannsókn á slysunum þegar þau verða.“

Fundaferðin

Hvernig fór þessi fundaferð fram?

„Við boðuðum alla lögreglustjóra á Íslandi á fund ásamt yfirmenn 112, utanspítalaþjónustu og sjúkraflutninga á hverju svæði fyrir sig. Við vildum vita hvernig verkefni tengd hestamönnum horfðu við þeim. Þar bar alls kyns mál á góma og sum þeirra höfðum við ekki sjálf leitt hugann að.“

Jóhanna ásamt Báru Benediktsdóttur framkvæmdastjóra hjúkrunar, Andreu Klöru Hauksdóttur verkefnastjóra HSS, Ingva Þór Hákonarsyni yfirmanni sjúkraflutninga og Þóri Þorsteinssyni lögreglunni á Suðurnesjum.

Jóhanna nefnir sem dæmi embætti Lögreglustjórans á Austurlandi sem stóð frammi fyrir þeirri ákvörðun hvort hleypa ætti fólki inn á snjóflóðahættusvæði til að sinna hestum eftir að flóðin féllu í Neskaupstað í mars 2023. Á fundi með viðbragðsaðilum á Akureyri voru vegalengdir og viðbragðstími ofarlega á baugi en á Blönduósi hafði lögreglan sjálf komið sér upp verklagi varðandi hestaslys sem Jóhanna vill hrósa sérstaklega fyrir. Sjálf telur hún hestaslys almennt ekki rannsökuð og að þar sé pottur brotinn.

„Ég get tekið sem dæmi atvik frá 2025 þar sem fimm ferðamenn duttu af baki í reiðtúr á vegum hestaleigu og slösuðust eftir að bíl var ekið aftur undir þau. Fjölskyldan krafðist bóta frá tryggingafélagi hestaleigunnar sem var hafnað og staðfest af úrskurðarnefnd Vátryggingamála. Hvergi var minnst á ábyrgð ökumannsins í málatilbúnaði fjölskyldunnar enda engin sönnunargögn til staðar. Það þarf einfaldlega að gera betur og þar er fyrsta skref að svona mál séu rannsökuð.“

Á fundi með Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu komu fram vangaveltur um Landsmót í Reykjavík enda sjaldan jafn mikill fjöldi innan borgarmarkanna. „Þar eru alls kyns hlutir sem vert er að skoða,“ segir Jóhanna.

Lögreglustjórinn á Suðurlandi og Vestfjörðum sáu sér ekki fært að mæta á fund með nefndinni.

„Mér þykir það miður sérstaklega þegar litið er til stærðar Suðurlands-umdæmisins, fjölda iðkenda og móta á svæðinu.“

Þá hitti Jóhanna jafnframt Ríkislögreglustjóra sem hrósaði nefndinni fyrir að taka frumkvæði í þessum málum. Þar var megináhersla lögð á að upplýsingar um eðli hestaslysa kæmist til skila, samræmingu verklags og að til yrði skráningin „hestaslys“ í kerfinu svo greina mætti einhver gögn í framtíðinni. Á fundi með yfirmanni Neyðarlínunnar var lagður grunnur að gerð greiningarkorts og bráðaflokkunar hestaslysa sem leiðir þá af sér viðeigandi boðun út til lögreglu og sjúkraflutningamanna þegar slysin verða.

Jóhanna er fyrrum lögreglukona og hefur því víðtæka þekkingu á málaflokknum.

Háorkuáverki

„Ég vil reyndar líka fá þetta samræmda verklag inn á spítalana. Staðreyndin er nefnilega sú að hestaslys geta falið í sér háorkuáverka, það er, þar sem manneskja fellur af hestbaki á yfir 30 kílómetra hraða á klukkustund eða lendir undir hesti. Viðbrögð við slíkum slysum þurfa að vera mjög hröð og skilvirk. Markmiðið er að sami hrollurinn fari um alla viðbragðsaðila þegar þeir heyra boðunina „hestaslys“ – tali nú ekki um utan alfaraleiðar – og til þess þurfa þeir að skilja hversu hættulegt það getur verið að detta af hestbaki. Raunar vil ég að þyrlan verði strax sett á forgang þegar svoleiðis er uppi á tengingum og viðkomandi fari beint í CT þegar komið er á spítala.“

Það er því ljóst að öryggisnefnd hefur mikilvægt verk að vinna. Verk sem snertir okkur öll sem stundum hestamennsku.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link