Fundur í kvöld á Húnaþingi á Stóru-Ásgeirsá

Almennir fundir um málefni hrossræktarinnar og félagsstarfsins verða haldnir um landið þegar Sveinn Steinarsson formaður Félags hrossabænda og Elsa Albertsdóttir ræktunarleiðtogi íslenska hestsins verða á ferðinni.
Helstu málefni sem tekin verða fyrir eru:
- Breytingar á félagskerfi Félags hrossabænda
- Markaðsmál
- Sýningarárið 2021 – helstu niðurstöður
Fundirnir verða haldnir á eftirfarandi stöðum kl. 20:00
- Mánudagurinn 11. október – Borgarfjörður í Vindási félagsheimili Hestamannafélagsins Borgfirðings.
- Þriðjudagurinn 12. október – Húnaþing á Stóru-Ásgeirsá (Mjólkurhúsið).
- Miðvikudagurinn 13. október – Hliðskjálf á Selfossi.
- Mánudagurinn 18. október – Eyjafjörður í Reiðhöllini á Akureyri.
- Þriðjudagurinn 19. október – Skagafjörður í Tjarnarbæ.
Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.