Funi og Náttfari með fræðslufund um skeiðgenið
„Ágætu félagar
Hér er viðburðartilkynning frá Hestamannafélaginu Funa og Hrossaræktarfélaginu Náttfara. Hestamannafélagið Funi og Hrossaræktarfélagið Náttfari
bjóða til fræðslufundar um skeiðgenið. Í Funaborg, Melgerðismelum, föstudaginn 1. marz kl. 20:30
Kristinn Hugason, kynbótafræðingur, verður með framsöguerindi um þessa
stórmerkilegu uppgötvun innan erfðafræðinnar og síðan má búast við líflegum
umræðum í kjölfarið. Hvetjum allt hesta- og hrossaræktarfólk til að mæta. -Veitingasala opin,“ segir í tilkynningu frá Funa og Náttfara
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH