Fyrrum forseti kíkti á Forseta
„Þann 30.júní var merkisdagur hér á bæ en þá varð Forseti 30 ára gamall. Fyrir 30 árum síðan stóðu yfir forsetakosnngar og um nóttina um það leiti sem úrslitin voru kunn og Ólafur Ragnar Grímsson bar sigur úr bítum fæddist myndarlegt hestfolald. Þótti því tilvalið að skíra folaldið Forseta. Núna á afmælisdaginn var það því vel við hæfi að Ólafur kæmi hér í heimsókn og heiðraði höfðingjann með komu sinni.“
Björn Jónsson ræktandi og eigandi Forseta frumtamdi Forseta á fjórða vetri en 10. april 2000 var svo farið með hann á Hellu til Þórðar Þorgeissonar sem tók við þjálfuninni. „Það gerði Þórður með sóma og mættu þeir í forskoðunardóm þann 11. júní fyrir Landsmót árið 2000. Þar gerðu þeir félagar það gott og hlaut Forseti einkunnina 8,00 fyrir byggingu, 8,08 fyrir hæfileika og 8,05 í aðaleinkunn 4 vetra gamall. Á Landsmótinu sama sumar hækkaði hann og fékk í aðaleinkunn 8,12,“ segir Björn og bætir við að árið eftir hafi þeir mætt aftur óhræddir til leiks og stóð Forseti efstur á sýningu í Reykjavík með aðaleinkunnina 8,23.
Ekki var látið staðar numið við svo búið og þegar Forseti varð 6 vetra, mættu þeir kappar enn og aftur á Landsmót og nú á Vindheimamelum í Skagafirði. Þar hafði bróðir Forseta og frændi, Gassi frá Vorsabæ II, staðið næst efstur í 6 vetra flokki stóðhesta sumarið 1990. Forseti afrekaði það einnig því hann lenti þar í öðru sæti með einkunnina 8,39 fyrir byggingu, 8,71 fyrir hæfileika og 8,58 í aðaleinkunn. Þar með var hann orðinn hæst dæmdi stóðhestur 6 vetra og yngri í heiminum árið 2002.
Forseti er undan Hrafni frá Holtsmúla og Litlu-Jörp frá Vorsabæ 2. En þess má geta að hann er hæst dæmda afkæmi Hrafns frá Holtsmúla. Forseti á skráð 341 afkvæmi á Worldfeng og hæst dæmda afkvæmið er Gleði frá Hólaborg með aðaleinkunnina 8,62. Einnig hafa mörg afkvæmi Forseta tekið þátt í keppni og gert góða hluti þar. Má þar nefna t.d. heimsmeistarann í slauktaumatölti, Straum frá Seljabrekku. Yngsta afkvæmið hans er fætt 2022 sem var getið er Forseti var þá 25 vetra.
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Dalvar jafnar heimsmet Viðars
Undirbúningur fyrir Landsmót gengur vel – tjaldsvæðin eru opin!
Jökull styrkir ungu knapana sína