Fyrsta kynbótasýningin í Hollandi í tvö ár tókst vel

  • 1. júní 2021
  • Fréttir

Þórálfur frá Flagbjarnarholti var hæst dæmda hross sýningarinnr ljósmynd: Henk Peterse

Kynbótasýning í Hollandi fór fram nú um helgina og er það fyrsta kynbótasýningin sem fram fer þar í landi í tvö ár. Nýr kynbótavöllur í Hazerswoude, sem er staðsett nálægt Amsterdam,  var nú notaður en þar er Hoogenboom fjölskyldan með aðsetur.

Góð stemning ríkti á meðal þeirra aðila sem mættir voru en vegna Covid-19 reglna að þá var kynbótasýningin ekki opin almenningi heldur eingöngu knöpum, aðstoðarmönnum, starfsfólki og dómurum. Veðrið var frábært þessa sýningardaga og alls voru sýnd 29 hross (14 stóðhestar og 15 hryssur) í fulnaðardómi. Hollensku ræktunarsamtökin sýndu beint frá sýningunni og var streymið frítt fyrir alla þá sem áhuga höfðu á að fylgjast með.

Jafnvel þótt að Hazerswoude sé nær norður strönd Hollands en Þýskalandi að þá komu nokkrir knapar þaðan með hross á sýninguna. Af þeim hrossum sem komu fram voru 11 ræktuð í Hollandi, 5 af þeim hrossum voru fædd á Íslandi en þó ræktuð af Hollendingum. 9 hross voru ræktuð á Íslandi og 3 í Þýskalandi og Austurríki. Þá þykir það merkilegt að alls voru 11 hross af þeim sem sýnd voru út af Álfadísi frá Selfossi.

Hæst dæmdi stóðhestur sýningarinnar í 7.vetra flokki og eldri var Djákni frá Flagbjarnarholti (IS:2007181608, F:Álfasteinn frá Selfossi) hann hllaut 8,10 fyrir sköpulag og 8,33 fyrir hæfileika með 9,0 fyrir skeið og samstarfsvillja (8,25 í aðaleinkunn), ræktaður og í eigu Jaap og Yvonna Groven. Svaðilfari frá Eikarlundi (IS2011101076, F: Huginn frá Haga) hlaut 8,18 fyrir sköpulag og 8,21 fyrir hæfileika, ræktaður af Leontine og Theo van Eikenhorst í eigu Els Cortens sem er þjálfari hestsins. Hæst dæmdi hollenskt ræktaði stóðhesturinn var Amor frá Hinriksstöðum (NL2013100163, F: Keilir frá Miðsitju) með 8,39 fyrir sköpulag, 9 fyrir hófa og 7,80 fyrir hæfileika (8,22 án skeiðs; 9 fyrir hægt tölt), sýndur sem klárhestur (8,03 í aðaleinkunn), ræktaður af Henk Peterse en í eigu og þjálfaður af Tom Buijtelaar.

Amor frá Hinriksstöðum mynd:Henk Peterse

Hæst dæmda hross sýningarinnar var Þórálfur frá Flagbjarnarholti (S2015181609, F: Herkules frá Ragnheiðarstöðum), líkt og Djákni ræktaðir af Jaap og Yvonne Groven, með 8,39 fyrir sköpulag og 8,45 fyrir hæfileika, þar á meðal 9,0 fyrir hægt tölt, samstarfsvilja og fet (8,43 í aðaleinkunn). Jaap og Yvonne Groven ræktuðu einnig Þráinn frá Flagbjarnarholti en Þórálfur og Þráinn eru sammæðra undan Þyrlu frá Ragnheiðarstöðum.

Hæst dæmda hryssa sýningarinnar var hin vindótta Timbiltá frá Stjórnarhofi ((NL2010200091, F: Gandur vom Erlengrund), ræktuð af Aad Visser og Klaartje Caminada, þjálfuð af Inge Frieling. Hlaut hún 8,25 fyrir sköpulag, 9 fyrir hófa og 10,0 fyrir prúðleika, 8,15 fyrir hæfileika þar á meðal 9,0 fyrir samstarfsvilja (aðaleinkunn 8,19). Hryssan Astra frá Holtsmúla (IS2011281120, F: Álfur frá Selfossi), ræktuð af Úrvashestum ehf en í eigu staðarhaldara kynbótasýningarinnar þeirra Thomas Hoogenboom og Sophia Phillipsen, hlaut hæsta einkunn fyrir hæfileika (sýnd sem klárhryssa) 8,50, með 8,5 fyrir alla eiginleika. Hlaut hún fyrir sköpulag 8,11 9,0 fyrir hófa (aðaleinkunn 8,02).

Timbiltá frá Stjórnarhofi mynd: Henk Peterse

Öll þau hross sem nefnd eru hér að ofan voru sýnd af Þórði Þorgeirssyni. Hópur ungra hrossaræktanda í Hollandi hafa staðaið að verkefni þar sem hollenskir ræktendur gátu fengið hrossin sín metin tvisvar af Þórð í febrúar og aftur í apríl, alls tóku 16 hross þátt í verkefninu. Viku fyrir kynbótasýninguna þjálfaði Þórður hrossin á Hazerswoude og á endanum sýndi hann 14 þeirra fagmannlega á sýningunni. Þetta verkefni gekk mjög vel og vonandi verður áframhald á því á næsta ári.

Greinarhöfundur: Ingrid Weyers.

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link