Fyrsta mót æskunnar á Suðurlandi

  • 1. mars 2023
  • Fréttir
Æska Suðurlands er ný mótaröð sem er samstarfsverkefni allra hestamannafélaga á Suðurlandi

Fyrsta mótið okkar verður haldið í reiðhöllinni á Flúðum sunnudaginn 5.mars. Mótið er samstarfsverkefni allra hestamannafélaganna á Suðurlandi og er það fyrsta í röð þriggja. Hver keppandi má ekki skrá sig með fleiri en einn hest í hverri grein.

Skráningargjöld eru 2.000kr fyrir hverja keppnisgrein barna/unglinga og 500kr fyrir polla. Skráning fer fram á Sportfeng en athugið að greinarnar eru með önnur nöfn þar. Skráningu lýkur á miðnætti laugardaginn 4.mars.

  • Smali polla – pollatölt
  • Smali barna – flugskeið 100m p2 barnaflokkur
  • Smali unglinga – flugskeið 100m p2 unglingaflokkur
  • Þrígangur barna – tölt T3
  • Fjórgangur unglinga – fjórgangur V2

Það er gott að senda kvittun fyrir millifærslu á netfangið [email protected] með nafni keppenda. Í þrígang barna verður riðið eftir þul, fyrst tölt/brokk, síðan stökk og svo fet. Reglur og myndir af greinum má finna á facebook síðu Æsku suðurlands. Húsið verður opið fyrir æfingar laugardaginn 4.mars frá kl. 11.00-14.00 fyrir þá sem vilja æfa sig. Húsið opnar kl. 14.00 á sunnudaginn 5.mars og dagskráin hefst svo kl. 16.00.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link