Fyrstu Skeiðleikar Skeiðfélagsins í kvöld
Fyrstu Skeiðleikar Skeiðfélagsins verða þann 13. maí en dagsetningar sumarsins er hægt að sjá hér fyrir neðan.
Ný stjórn hefur tekið við Skeiðfélaginu en Unnsteinn Reynisson hefur tekið við af Árna Sigfúsi Birgissyni sem formaður félagsins. Önnur í stjórn eru Atli Fannar Guðjónsson, Ingvi Tryggvason, Guðbjörn Tryggvason og Hanne Smidesang.
Vill Skeiðfélagið þakka þeim Árna Sigfúsi og Daníel Inga Larsen fyrir ötult starf fyrir félagið undanfarin 10 ár en þeir hafa borið mestann þunga af vinnunni í kringum félagið.
Dagssetningar
13. maí
27. maí
10. júní
27. ágúst (með Suðurlandsmóti á Hellu)
Nýjungar á Skeiðleikum í ár
Skeiðfélagið verður með nokkrar nýjungar í ár en í fyrsta sinn verður boðið upp á sér ungmennaflokk og verður sér stigakeppni í þeim flokki og sigurvegari verðlaunaður að loknum skeiðleikum sumarsins.
„Við hvetjum knapa til að mæta vel undirbúna til leiks og sýna fallega og góða reiðmennsku en Skeiðfélagið leggur mikla eggur mikla áherslu á að vera til fyrirmyndar þegar kemur að því að halda Skeiðmót og vonast til að knapar haldi þeirri ímynd á lofti.“
Tímatökur verða útfærðar af timataka.is í sumar þar sem félagið á ekki löglegan tímatökubúnað.
Sér merktur upphitunarhringur
Til þess að skeiðleikarnir geti runnið enn smurðar ætlar Skeiðfélagið að útbúa ákveðið upphitunarsvæði (e. Collecting ring) þar sem knapar eiga að vera mættir og sýnilegir þremur mínútum áður en keppnisgrein hefst. Á endanum á brautinni verður lokað inn á svæðið til þess að auka öryggi knapa. Bílar komast upp á stæði, enn til að keyra inn á planið þarf að keyra í gegnum hesthúsahverfið.
„Það er mikilvægt að knapar séu stundvísir svo að keppnin sé áhorfendavæn. Ef knapi mætir ekki eftir þrjú innköll í braut, verður næsti knapi kallaður inn.Einn knapi í hverjum riðli veðrur merktur með lit til þess að gera það einfaldara fyrir tímatökumenn og áhorfendur að vita hvaða knapar eru í braut,“ kemur fram í tilkynningu frá félaginu en EiðfaxiTV mun sýna beint frá öllum Skeiðleikum sumarsins.
Nýjar reglur varðandi spjaldanotkun
Skeiðfélagið vill líka að gefnu tilefni minna á nýja reglur varðandi spjaldanotkun. Ein stærsta breytingin sem samþykkt var lýtur að agaviðurlögum í íþróttakeppnum. Tekið verður upp nýtt kerfi með fimm mismunandi litum af spjöldum sem hvert og eitt hefur sína merkingu.
Fimm litir af spjöldum
- Gult spjald: Viðvörun vegna minni háttar brota eða óprúðmannlegrar framkomu.
- Rautt spjald: Alvarleg viðvörun sem getur leitt til brottvísunar úr keppni
- Blátt spjald (Heilbrigðisspjald): Notað ef dómari grunar að hestur sé ekki í keppnishæfu ástandi, t.d. vegna helti eða blóðs.
- Grátt spjald: Gefið fyrir ógilda sýningu, t.d. ef knapi ríður ranga leið eða missir stjórn á hesti.
- Hvítt spjald: Notað af dómara til að óska eftir fundi með yfirdómara.
Sérstök athygli er vakin á því að gul og rauð spjöld fylgja knapanum út almanaksárið og geta mörg spjöld leitt til sjálfkrafa keppnisbanns
Fyrstu Skeiðleikar Skeiðfélagsins í kvöld
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
WR Íþróttamót Sleipnis heldur áfram í dag
Um 700 gestir á Æskan og hesturinn og frumkvöðlar heiðraðir
Skráning hafin á opið íþróttamót Spretts