Meistaradeild Líflands & æskunnar Gabríel og Isi-Pack sigra í Meistaradeild Líflands og æskunnar

  • 23. apríl 2026
  • Fréttir

Gabríel Liljendal Friðfinsson sigurvegari í einstaklingskeppni Meistaradeildar Líflands og æskunnar

Ragnar Dagur og lið Top Reiters sigurvegarar í gæðingaskeiði

Síðasta mótið í Meistaradeild Líflands og æskunnar fór fram á félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks í gærkvöldi þar sem keppt var í gæðingaskeiði. Að móti loknu var svo verðlaunaafhending þar sem efstu knapar og lið voru heiðruð. Alls var keppt í sex greinum í vetur; Fjórgangi, slaktaumatölti, gæðingalist, fimmgangi, tölti og gæðingaskeiði.

Sýnt var frá öllum mótunum í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og var það okkur heiður að gera þessum framúrskarandi ungu knöpum hátt undir höfði, þökkum við áhorfendum samfylgdina í vetur sem og öllum þeim sem komu að vinnu í kringum deildina.

Gabríel og lið Isi-Pack heildarsiguvegarar

Í einstaklingskeppninni er það Gabríel Liljendal Friðfinnsson sem vann heildarsigur með 44 stig. Hann sýndi fram á það hversu fjölhæfur knapi hann er með því að taka þátt í öllun sex greinum og það á sex mismunandi hrossum. Hann varð annar í fjórgangi á Litríki frá Miðengi með 6,87, Keppti í slaktaumatölti á Þokka frá Egilsá þar sem hann hlaut 6,17 og 13.-14.sæti. Tók 2. sætið í gæðingalist á Ólsen frá Egilsá með 6,93 í einkunn, sigraði keppinauta sína í fimmgangi á Fiðlu frá Egilsá með einkunnina 6,74. Keppti í tölti á Byrjun frá Halakoti og varð í áttunda sæti með 6,39. Endaði svo mótaröðina á að verða í 2.-3 sæti í gæðingaskeiði á Jökli frá Stóru-Ásgeirsá með 6,25 í einkunn. Flottur árangur hjá Gabríel og færum við honum hamingjuóskir með sigurinn. Í öðru sæti í einstaklingskeppni varð Álfheiður Þóra Ágústsdóttir með 35,5 stig og í því þriðja Elimar Elvarsson með 27 stig.

  1. Gabríel Liljendal Friðfinnsson – 44 stig
  2. Álfheiður Þóra Ásgeirsdóttir – 35,5 stig
  3. Elimar Elvarsson – 27 stig.

Í liðakeppninni var það svo lið Isi-Pack sem vann heildarsigur. Liðsmenn þess eru áður nefndir Gabríel og Elimar en auk þeirra voru í liðinu þær Elsa Kristín Grétarsdóttir og Jórunn Edda Antonsdóttir. Allir liðsmenn stóðu sig vel í vetur og vann liðið heildarsigur í fjórum greinum af sex þ.e. fjórgangi, gæðingalist, fimmgangi og tölti. Hlutu þau alls 439,5 stig og nokkuð öruggan sigur. Í öðru sæti varð lið Top Reiter með 336 stig og í því þriðja lið Hringdu/Toyota Selfossi með 335,5 stig.

  1. Isi-Pack – 439,5 stig
  2. Top Reiter – 336 stig
  3. Hringdu/Toyota Selfossi

Lið Isi-Pack sigurvegari í liðakeppni. F.v. Gabríel Liljendal Friðfinnsson, Elimar Elvarsson, Jórunn Edda Antonsdóttir og Elsa Kristín Grétarsdóttir.

Ragnar Dagur sigurvegari í gæðingaskeiði

Í gæðingaskeiði var það Ragnar Dagur Jóhannsson sem vann á hryssunni Urlu frá Pulu en hlutu þau í einkunn 6,33. Jöfn í 2.-3. sæti með einkunnina 6,25 voru þau Bertha Liv Bergstað á Borgari Búa frá Árbæjarhjáleigu og Gabríel Liljendal Friðfinnsson á Jökli frá Stóru-Ásgeirsá. Í gæðingaskeiði var það svo lið Top Reiter sem tók liðaskjöldinn.

Ragnar Dagur og Urla frá Pulu sigurvegarar í gæðingaskeiði Meistaradeildar Líflands og æskunnar.

Niðurstaða gæðingaskeið
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Ragnar Dagur Jóhannsson Urla frá Pulu 6,33
2 Bertha Liv Bergstað Borgar Búi frá Árbæjarhjáleigu II 6,25
3 Gabríel Liljendal Friðfinnsson Jökull frá Stóru-Ásgeirsá 6,25
4 Álfheiður Þóra Ágústsdóttir Gammur frá Ósabakka 2 6,17
5 Apríl Björk Þórisdóttir Gnýr frá Gunnarsholti 6,17
6 Gabríela Máney Gunnarsdóttir Tromma frá Laufhóli 5,92
7 Ísabella Helga Játvarðsdóttir Lávarður frá Ekru 5,75
8 Ylva Sól Agnarsdóttir Fjóla frá Garðshorni á Þelamörk 5,67
9 Fríða Hildur Steinarsdóttir Auðna frá Húsafelli 2 4,88
10 Árný Sara Hinriksdóttir Foringi frá Laxárholti 2 4,63
11 Elsa Kristín Grétarsdóttir Spurning frá Sólvangi 4,58
12 Eyvör Vaka Guðmundsdóttir Höfði frá Bakkakoti 4,46
13 Sigríður Fjóla Aradóttir Kolfreyja frá Hvítárholti 4,38
14 Arnór Darri Kristinsson Ófeig frá Syðra-Holti 4,33
15 Bjarni Magnússon Brák frá Lækjarbrekku 2 4,08
16 Emma Rún Sigurðardóttir Tinna frá Reykjadal 3,96
17 Svava Marý Þorsteinsdóttir Sæld frá Syðra-Langholti 3,88
18 Kristín Rut Jónsdóttir Ása frá Fremri-Gufudal 3,63
19 Loftur Breki Hauksson Sölvi frá Stuðlum 3,63
20 Kristín Eir Hauksdóttir Holake Þórfinnur frá Skáney 3,58
21 Elísabet Líf Sigvaldadóttir Hildur frá Feti 3,50
22 Hrefna Kristín Ómarsdóttir Hljómur frá Litlalandi Ásahreppi 3,25
23 Ásthildur Viktoría Sigurvinsdóttir Gletta frá Litla-Dunhaga II 3,21
24 Elísabet Benediktsdóttir Óðinn frá Silfurmýri 3,13
25 Una Björt Valgarðsdóttir Gígja frá Tungu 2,38
26 Bryndís Anna Gunnarsdóttir Von frá Ási 1 2,04
27 Linda Guðbjörg Friðriksdóttir Fjöður frá Gíslholti 2,00
28 Elimar Elvarsson Ása frá Kagaðarhóli 1,83
29 Sigurður Ingvarsson Ísak frá Laugamýri 1,00
30-31 Hákon Þór Kristinsson Stanley frá Hlemmiskeiði 3 0,96
30-31 Jórunn Edda Antonsdóttir Aríel frá Fitjum 0,96
32 Viktor Leifsson Tryggur frá Selfossi 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link