Gæðingafimi á föstudaginn
Föstudaginn 18.mars verður keppt í Gæðingafimi í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum á Ingolfshvoli í Ölfusi.
Gæðingafimi er gríðarlega krefjandi keppnisgrein þar sem reynir á ganghæfileika og þjálfunarstig hests. Keppni í gæðingafimi er alltaf að verða sterkari og í framförum og knapar þurfa að koma vel undirbúnir til leiks.
Knapi sem vill keppa í Gæðingafimi í Meistaradeildinni getur keypt sér keppnisrétt sem 25 knapi. Skráning fer fram á [email protected] og lýkur á hádegi kl 12 miðvikudaginn 16.mars. Þátttökugjald er 50.000kr.
Hér er hægt að nálgast reglur um uppboðssæti meistaradeildar https://www.meistaradeild.is/l
Það verður mikið um dýrðir og spennandi sýningar og skemmtilega stemningu næskomandi föstudagskvöld í Ölfushöllinni. Frítt er inn í höllina fyrir áhorfendur. Húsið opnar kl. 17 Boðið verður upp á sunnlenska kjötsúpu og drykki í öllum stærðum og gerðum.
www.meistaradeild.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH