Gæðingakeppni í Blue Lagoon mótaröðinni
Eftirfarandi flokkar eru í boði í gæðingakeppni innanhús, riðið verður heilt prógram í forkeppni og einn inn á í einu:
Barnaflokkur (10-13 ára) 20 keppendur
Barnaflokkur (10-13 ára), gæðingaflokkur 2: 20 keppendur
Unglingaflokkur (14-17 ára 20 keppendur
Unglingaflokkur (14-17 ára, gæðingaflokkur 2: 20 keppendur
Ungmennaflokkur (18-21árs) 20 keppendur
Keppendur sýna:
Barnaflokkur (Fet, tölt eða brokk, stökk)
Unglingaflokkur (fet, hægt tölt, brokk, stökk og yfirferðargangur-annaðhvort tölt eða brokk)
Ungmennaflokkur (fet, hægt tölt, brokk, stökk og greitt tölt)
Nánari upplýsingar um reglur í gæðingakeppni á www.gdlh.is
6 efstu knapar fara í úrslit en það verða ekki riðin B-úrslit. Knapar í barna-, unglinga- og ungmennaflokki safna stigum í gegnum mótaröðina og verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu knapana í hverjum flokki á síðasta mótinu.
Einungis er leyfilegt að skrá 1 hest á hvern knapa á þessu móti
Ekki er leyfilegt að keppa upp fyrir sig um flokk á þessum mótum og keppandinn verður afskráður ef hann er skráður í rangan flokk
Við minnum einnig á tölvupóstinn okkar bluelagoon@sprettur.is og reynum við eftir bestu getu að svara sem allra fyrst.
Nefndin vinnur öll störf í sjálfboðaliðastarfi
Blue Lagoon nefndin áskilur sér rétt á að sameina flokka ef ekki næst nægur fjöldi í einhverja flokka.
Gaman að segja frá því að BLUE LAGOON mótaröðin verður í beinni útsendingu á EIÐFAXI TV, www.eidfaxitv.is.
Opnir tímar til að æfa sig verða á mánudaginn 6.apríl, í Samskipahöllinni kl.10:00-12:00
Skráningin fer fram í gegnum Sportfeng, www.sportfengur.com, frá föstudeginum 3 apríl fram til miðnættis miðvikudaginn 8.apríl. Skráningargjaldið er 4500.kr.
Gæðingakeppni í Blue Lagoon mótaröðinni
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Þórunn bar sigur úr býtum
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
Öskufljót og flink skeiðhross í 1.deild Hringdu