Hestamannafélagið Skuggi stóð fyrir Gæðingakeppni um helgina, en mótið var jafnframt úrtaka fyrir Landsmót 2011.
“Þar skiptir máli í hvaða sæti viðk. lendir í forkeppni en þrír efstu eftir hana öðlast rétt til að fara á Landsmót. Væntanlega birtast helstu niðurstöður síðar í kvöld en segja má að Gunnar Halldórsson hafi verið maður mótsins, hann sigraði í A flokki á Krás f. Arnbjörgum og B flokki á Eskil frá Lairulæk og átti ennfrremur glæsilegasta hest mótsins, Eskil. Erla Rún Rúnarsdottir sigraði ungmennaflokkinn, Axel Örn Ásbergsson sigraði unglingaflokkinn á Fiðlu f. Borgarnesi og barnaflokkinn sigraði Aron Freyr Sigurðsson á Svaðilfara f. Báreksstöðum en hann var í fjórða sæti eftir forkeppni,” segir í frétt frá hestamannafélaginu.
Meðfylgjandi eru úrslit mótins. Einkunnir eru úr úrslitum/forkeppni
Barnaflokkur
Aron Freyr Sigurðsson á Svaðilfara f. Báreksstöðum 8,22/7,01
Arna Hrönn Ámundadóttir á Bíld f. Dalsmynni 7,91/7,49
Ísólfur Ólafsson á Sólmari f. Borgarnesi 7,74/7,44
Berghildur Björk Reynisdóttir á Tíbrá f. Innra-Leiti 7,69/7,28
Unglingaflokkur
Axel Ásbergsson á Fiðlu f. Borgarnesi 8,18/8,04
Atli Steinar Ingason á Diðrik f. Grenstanga 8,13/7,98
Ólafur Axel Björnsson á Toppi f. Svínafelli 2 7,92/7,76
Þorgeir Ólafsson á Sólbrá f. Borgarnesi 7,89/7,84
Berglind Ýr Jóhannsdóttir á Spræk f. Eiríksstöðum 7,69/7,54
Ungmennaflokkur
Erla Rún Rúnarsdóttir á Ljósu Nótt f. Borgarnesi 7,85/7,41
B flokkur gæðinga
Eskill f. Leirukæk og Gunnar Halldórsson 8,52/8,29
Kolfreyja f. Snartartungu og Halldór Sigurkarlsson 8,30/8,21
Ösp f. Króki og Iðunn Svansdóttir 8,04/8,05
Hugar f. Kvíarhóli og Marteinn Valdimarsson 8,01/7,83
Ísafold f. Þúfu og Guðni Halldórsson 7,83/7,83
A flokkur gæðinga
Krás f. Arnbjörgum og Gunnar Halldórsson 8,25/8,09
Irpa f. Borgarnesi og Karl Björgúlfur Björnsson 8,15/7,75
Tilvera f. Syðstu Fossum og Ámundi Sigurðsson 8,03/7,94
Hylling f. Tröðum og Snorri Elmarsson 7,93/6,76