Gæðingamót, opið tölt- og skeiðmót í Hringsholti

  • 10. júní 2011
  • Fréttir

Mynd/www.hringurdalvik.net

Gæðingamót, opið tölt- og skeiðmót í Hringsholti

Gæðingamót Hrings og sameginleg úrtaka Hrings, Glæsis og Gnýfara vegna Landsmóts 2011 ásamt opnu Töltmóti og skeiðgreinum, verður haldið á Hringsholtsvelli föstudaginn 17.júní nk. 

Styrktaraðili mótsins er Lífland-Akureyri.
Keppt verður í eftirtöldum greinum
A-flokkur 
B-flokkur 
Unglingar, ungmenni og barnaflokkur 
Þá verður einnig opin Tölt keppni. 
Og að lokum skal nefna skeiðgreinar, 100m skeið 150m og 250m skeið úr básum. – Rafræn tímataka.
Skráningargjald er kr. 2500 á fyrstu skráningu per knapa og 2000 á næstu skráningar.
Skráningargjald börn og unglingar kr 1000 á hverja skráningu.
Skráning fer fram á heimasíðu félagsins  (neðst í valstiku á forsíðu)
Skráningargjald skal lagt inn á reikning félagsins 1177-26-175, kennitala 540890-1029, tilgreina þarf fyrir hvernig er verið að greiða ef annar en keppandi greiðir. Greiðslufrestur er til fimmtudags 15. júní  kl 20:00
Vinsamlegast sendið kvittun á netfang: [email protected]
 
Þetta kemur fram í tilkynningu frá mótanefnd hestamannafélagsins Hrings.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link