Gæðingar á stóðhestaveislu Rangárhallarinnar

  • 16. mars 2011
  • Fréttir
Gæðingar á stóðhestaveislu Rangárhallarinnar

Fleiri gæðingar hafa bætst við hóp stóðhesta sem sýndir verða á stóðhestaveislu Rangárhallarinnar sem fram fer nk. laugardag kl. 13.

„Má þar nefna Fursta  frá Stórahofi, Gautrek frá Torfastöðum, Hring frá Skarði, Kerúlf frá Kollaleiru, Njál frá Friðheimum, Seif frá Prestsbakka, Spóa frá Hrólfsstaðahelli ásamt þeim sem áður hafa verið taldir upp,“ segir í tilkynningu frá Rangárhöllinni.

Miðaverð er 2500 kr. en frítt er fyrir 12 ára og yngri. Miðar eru seldir í forsölu í Fóðurblöndunni á Hvolsvelli, Klippistofunni á Hellu, Baldvin og Þorvaldi á Selfossi, Líflandi í Reykjavík. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link