Gæðingaúrtaka Léttis, Grana, Þráins og Þjálfa
Hestamannafélögin Léttir, Grani, Þráinn og Þjálfi halda sameiginlega gæðingaúrtöku, opna töltkeppni og 100 metra skeiðkeppni vegna Landsmóts hestamanna á Hlíðarholtsvelli á Akureyri mánudaginn 13. júní nk.
„Keppnisgreinar: A-B flokkar gæðinga. Ungmenna-Unglinga og barnaflokkar. (einungis forkeppni) Opin töltkeppni (forkeppni og úrslit),100 metra skeið. Úrtakan fer fram á Hlíðarholtsvelli á Akureyri mánudaginn 13 júní.
Skráning fer fram á [email protected]. Skráningargjald er kr 4000 fyrir hverja skráningu. Leggja skal inn á reikning 302-26-15839. Kt430269-6749. Lokafrestur skráningar er laugardagurinn 11 júní kl 22.00. Sé skráningargjald ógreitt við lok skráningar fellur skráningin niður. Allar nánari upplýsingar í síma 860-2622 (Sigfús Helgason)),“ segir í tilkynningu frá mótshöldurum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH