Gæðingaveisla á Heimsbikarmótinu-
Fjölmargir nafntogaðir gæðingar og knapar þeirra eru skráðir til leiks á Heimsbikarmótið – World Toelt 2012 – sem fer fram 24. – 25. febrúar í Óðinsvéum.
Fullskráð er í töltkeppni mótsins. Á vefsíðu mótsins kemur fram að sigurvegari stóðhestasýningar síðasta árs Moli frá Skriðu og Nils-Christian Larsen ætli nú að etja kappi í töltkeppninni ásamt heimsmeistaranum fyrrverandi Hvini frá Holtsmúla og hinni ungu reiðkonu Elísu Lundhaug. Af fleiri þátttakendum má nefna Odda fra Gultentorp og Andreas Kjeldgaard, Guma frá Strandarhöfði og Dorte Rasmussen, Galdur frá Auðsholtshjáleigu og Gry Hagelund og Herkules frá Pegasus og Johanna Wingstrand. Þá mun sigurvegarinn frá því á síðasta ári, Jóhann Skúlason mæta en ekki er víst hvaða hest hann muni mæta til leiks með, spurning hvort það verði ekki Tígull frá Kleiva?
Þá mun heimsmeistarinn Anne Stine Haugen og Muni frá Kvistum vera skráð til leiks í fjórgangskeppni Heimsbikarmótsins, ásamt fleiri firnasterkum keppendum, þar á meðal Jarl frá Miðkrika og Lucia Koch, Þeyr frá Akranesi og Thomas Rørvang og Óskar frá Akureyri og Sys Pilegaard. Þá mun sigurvegari síðasta árs Reyr frá Dalbæ og Nils Christian Larsen reyna að verja titil sinn.
Miðasalan á mótið er hafið hér. Boðið er upp á afslátt af miðum ef þeir eru keyptir fyrir 15. desember.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH