Geysir á flesta fulltrúa í landsliðinu

  • 20. október 2026
  • Fréttir
Fulltrúar 10 hestamannafélaga í landsliðshópnum

Landsliðsþjálfarar Íslands í hestaíþróttum, þeir Ísólfur Líndal Þórisson og Sigvaldi Lárus Guðmundsson, hafa opinberað landsliðshópa Íslands fyrir komandi keppnistímabil.

Alls voru valdir 40 knapar í hóp fullorðinna og U21-knapa, en auk þeirra eiga fimm ríkjandi heimsmeistarar frá HM 2025 sjálfskrafa sæti og þátttökurétt á Heimsmeistaramótinu 2027 sem fer fram í Rieden í Þýskalandi.

Þegar litið er til félaga er hestamannafélagið Geysir með flesta fulltrúa að þessu sinni, eða alls 13 knapa. Fákur kemur þar á eftir með 8 fulltrúa og Sleipnir með 7. Alls eiga tíu hestamannafélög víðs vegar um landið fulltrúa í hópunum að þessu sinni.

Hér fyrir neðan má sjá skiptingu knapa eftir hestamannafélögum:

Geysir – 13 knapar
  • Dagur Sigurðarson (U21)
  • Eik Elvarsdóttir (U21)
  • Elísabet Líf Sigvaldadóttir (U21)
  • Kristján Árni Birgisson (Titilverjandi)
  • Jón Ársæll Bergmann (Titilverjandi)
  • Ásmundur Ernir Snorrason
  • Elvar Þormarsson
  • Gústaf Ásgeir Hinriksson
  • Hanna Rún Ingibergsdóttir
  • Hans Þór Hilmarsson
  • Jóhanna Margrét Snorradóttir
  • Sigurður Sigurðarson
  • Þorgeir Ólafsson
Fákur – 8 knapar
  • Gabríel Liljendal Friðfinnsson (U21)
  • Lilja Rún Sigurjónsdóttir (U21)
  • Matthías Sigurðsson (U21)
  • Ragnar Snær Viðarsson (U21)
  • Árni Björn Pálsson (Titilverjandi)
  • Eyrún Ýr Pálsdóttir
  • Sigurður Matthíasson
  • Viðar Ingólfsson
Sleipnir – 7 knapar
  • Elsa Kristín Grétarsdóttir (U21)
  • Loftur Breki Hauksson (U21)
  • Védís Huld Sigurðardóttir (Titilverjandi)
  • Glódís Rún Sigurðardóttir
  • Guðmunda Ellen Sigurðardóttir
  • Haukur Baldvinsson
  • Sigursteinn Sumarliðason
Sprettur – 4 knapar
  • Apríl Björk Þórisdóttir (U21)
  • Elva Rún Jónsdóttir (U21)
  • Guðný Dís Jónsdóttir (U21)
  • Herdís Björg Jóhannsdóttir (U21)
Sörli – 4 knapar
  • Fanndís Helgadóttir (U21)
  • Kolbrún Sif Sindradóttir (U21)
  • Sara Dís Snorradóttir (U21)
  • Brynja Kristinsdóttir
Borgfirðingur – 2 knapar
  • Kristín Eir Holaker Hauksdóttir (U21)
  • Flosi Ólafsson
Skagfirðingur – 2 knapar
  • Hjördís Halla Þórarinsdóttir (U21)
  • Daníel Gunnarsson
Þytur – 2 knapar
  • Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal (U21)
  • Helga Una Björnsdóttir
Dreyri – 1 knapi
  • Jakob Svavar Sigurðsson
Hörður – 1 knapi
  • Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir (Titilverjandi)
Snæfellingur – 1 knapi
  • Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir (U21)

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link