Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Gífurlega spennandi lokakvöld Meistaradeildar Líflands

  • 27. mars 2026
  • Fréttir

Eyrún Ýr fagnar sigri í einstaklingskeppni Meistaradeildar líflands á lokakvöldi síðasta keppnistímabils

Það verður æsispennandi lokakvöldið í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum.

Ráslistar eru klárir fyrir keppni í tölti og flugskeiði í gegnum höllina á lokakvöldi Meistaradeildar Líflands. Það er deginum ljósara að þetta verður veisla fyrir alla hestaunnendur. Á ráslistanum má sjá sterkustu töltara og fljótustu skeiðhross landsins.

Keppni hefst kl. 19:00 á morgun, föstudag. Keppnin fer fram í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli. Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt geta horft á keppnina í beinni útsendingu á Eiðfaxa TV.

Lífland býður frítt í stúkuna fyrir alla sem mæta en fyrir þá sem vilja gera kvöldið enn betra verður að vanda glæsilegt steikarhlaðborð á staðnum og þeir sem panta fyrir fram fá frátekið sæti á besta stað í stúkunni. Pantið HÉR ! (Ath. Takmörkuð sæti í boði). Húsið opnar klukkan 16:30

Mjótt á munum í einstaklingskeppninni

Á listanum eru sigurvegararnir frá því í fyrra Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði en Ásmundur er einnig efstur í einstaklingskeppninni. Staðan var svipuð fyrir lokakvöldið í fyrra en þá var Ásmundur einnig efstur í einstaklingskeppninni en Eyrún Ýr Pálsdóttir náði að skjóta sér yfir hann eftir frábært gegni á lokakvöldinu. Ásmundur ætlar sér líklega ekki að endurtaka leikinn í ár og mætir vel hestaður en í skeiðið mætir hann með Núma frá Árbæjarhjáleigu en hann hefur ekki farið á honum áður í gegnum húsið.

Íslandsmeistararnir frá því í fyrra mæta einnig til leiks þeir Jakob Svavar Sigurðsson og Skarpur frá Kýrholti. Þetta eru allt þekktar stærðir sem við höfum séð áður í deildinni í vetur eða þá í fyrra, nema þá Sparta frá Eystra-Fróðholti sem Jón Ársæll Bergmann mætir með en það er hryssa sem hefur ekki keppt áður en er sýnd í kynbótadómi með 9,5 fyrir tölt og 9,0 hægt tölt.

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir mætir með Flóvent frá Breiðsstöðum í töltið en hún er önnur í einstaklingskeppninni og þarf að ná sér í stig helst í báðum greinum á morgun. Hún og Flóvent hafa verið á miklu flugi í vetur og landað sigri bæði í fjórgangi og gæðingalist. Hún mætir með Hörpurós frá Helgatúni í skeið en þær voru með áttunda besta tímann í gegnum höllina í fyrra.

Mun TopReiter/Sumarliðabær endurtaka leikinn

Það var lið Sumarliðabæjar sem vann liðakeppnina í fyrra og sameinaðist liðið TopReiter fyrir þetta tímabil. TopReiter liðið var með alslemmu í fyrra í skeiðinu í gegnum höllina þar sem knapar í liðinu röðuðu sér í þrjú efstu sætin. Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk unnu greinina í fyrra og miðað við hraðann á þeim í 150 m. skeiðinu um síðustu helgi munu hinir þurfa hafa sig allan við til að ná í skottið á þeim. Eyrún Ýr Pálsdóttir var önnur á Friðsemd frá Kópavogi og mæta þær stöllur til leiks en keppa í uppboðssæti, sem þýðir að árangur þeirra telur ekki í liðakeppnina en telur í einstaklingskeppninni. Árni Björn Pálsson var þriðji á Ögra frá Horni I en hann er í bullandi baráttu í einstaklingskeppninni en eftir skeiðmótið er hann í þriðja sæti. Árni teflir þá Krika frá Krika fram í töltinu og ætlar sér að reyna að landa áttunda Meistaratitlinum sínum á morgun.

Það verður áhugavert að sjá hvort lið TopReiter/Sumarliðabæjar nái aftur alslemmu á morgun en liðið er í toppbaráttu við lið Hjarðartúns en einungis munar hálfu stigi á liðunum fyrir kvöldið. Liðin hafa háð álíka baráttu áður en 2023 voru þau jöfn að stigum á lokakvöldinu og þurfti fjölda sigra í einstökum greinum til að skera úr um sigurvegarann. Lið Hjarðartúns þurfti þá að lúta lægra haldi og

 

Ráslisti tölt

1 Eyrún Ýr Pálsdóttir Náttrún frá Þjóðólfshaga 1 Top Reiter / Sumarliðabær
2 Helga Una Björnsdóttir Hrefna frá Fákshólum Hjarðartún
3 Jóhanna Margrét Snorradóttir Orri frá Sámsstöðum Hestvit / Árbakki
4 Þorgeir Ólafsson Aspar frá Hjarðartúni Ib bílar
5 Flosi Ólafsson Röðull frá Haukagili Hvítársíðu Hrímnir / Hest.is
6 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum Ganghestar / Margrétarhof
7 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Grettir frá Hólum Ganghestar / Margrétarhof
8 Teitur Árnason Auðlind frá Þjórsárbakka Top Reiter / Sumarliðabær
9 Gústaf Ásgeir Hinriksson Útherji frá Blesastöðum 1A Hestvit / Árbakki
10 Benjamín Sandur Ingólfsson Elding frá Hrímnisholti Ib bílar
11 Brynja Kristinsdóttir Sunna frá Haukagili Hvítársíðu Hrímnir / Hest.is
12 Jakob Svavar Sigurðsson Skarpur frá Kýrholti Hjarðartún
13 Jón Ársæll Bergmann Sparta frá Eystra-Fróðholti Ib bílar
14 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Hrímnir / Hest.is
15 Árni Björn Pálsson Kriki frá Krika Top Reiter / Sumarliðabær
16 Glódís Rún Sigurðardóttir Vikar frá Austurási Hestvit / Árbakki
17 Arnhildur Helgadóttir Frosti frá Hjarðartúni Hjarðartún
18 Ragnhildur Haraldsdóttir Særún frá Steinnesi Ganghestar / Margrétarhof

Ráslisti flugskeið

1 Hinrik Bragason Klókur frá Dallandi Hestvit / Árbakki
2 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk Top Reiter / Sumarliðabær
3 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Hörpurós frá Helgatúni Ganghestar / Margrétarhof
4 Hanne Oustad Smidesang Vinátta frá Árgerði Uppboðssæti
5 Benjamín Sandur Ingólfsson (L) Gullborg frá Læk Ib bílar
6 Eyrún Ýr Pálsdóttir Friðsemd frá Kópavogi Uppboðssæti
7 Hans Þór Hilmarsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði Hjarðartún
8 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk Hrímnir / Hest.is
9 Sigurður V. Matthíasson (L) Gnúpur frá Dallandi Ganghestar / Margrétarhof
10 Jakob Svavar Sigurðsson Jarl frá Kílhrauni Hjarðartún
11 Jón Ársæll Bergmann Stirnir frá Laugavöllum Ib bílar
12 Flosi Ólafsson Orka frá Breiðabólsstað Hrímnir / Hest.is
13 Teitur Árnason Væta frá Leirulæk Top Reiter / Sumarliðabær
14 Gústaf Ásgeir Hinriksson Piltur frá Sturlureykjum 2 Hestvit / Árbakki
15 Helga Una Björnsdóttir (L) Salka frá Fákshólum Hjarðartún
16 Þorgeir Ólafsson Herborg frá Felli Ib bílar
17 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni I Top Reiter / Sumarliðabær
18 Ásmundur Ernir Snorrason Númi frá Árbæjarhjáleigu II Hrímnir / Hest.is
19 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Alviðra frá Kagaðarhóli Ganghestar / Margrétarhof
20 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bríet frá Austurkoti Hestvit / Árbakki

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link