Glæsihross á kynbótabrautina í Austurríki
Ísland mun tefla fram einvala hópi kynbótahrossa á HM í Austurríki.
Fremstur í flokki fer Glotti frá Sveinatungu sem sýndur verður af Jakobi Svavar Sigurðssyni sem endra nær. Á kynbótasýningu í Osterbyholz í Þýskalandi í vor hlaut Glotti 8,64 í aðaleinkunn, fór hann í 8,24 fyrir sköpulag og 8,90 fyrir hæfileika. Þess má geta að þegar Jakob sýndi gæðinginn 6 vetra gamlan hlaut hann 8,63 í aðaleinkunn, 8,11 fyrir sköpulag og 8,97 fyrir hæfileika, og jafnaði þá dóm Dalvars frá Auðsholtshjáleigu sem 6 vetra stóðhestur hafði fengið.
Þóroddssonurinn Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu kom sterkur inn í 6 vetra flokk á nýafstöðnu Landsmóti. Hann hlaut einkunnina 8,50 fyrir sköpulag og 8,51 fyrir hæfileika og var í öðru sæti á eftir Konsert frá Korpu. Arnoddur er undan Trú frá Auðsholtshjáleigu en hún hefur nú náð Heiðursverðlaunum og hafa öll fimm afkvæmi Trúar sem sýnd hafa verið; Tór, Tónn, Toppur, Tíbrá og Arnoddur, hlotið 1.verðlaun.
Í flokki 5 vetra stóðhesta mun koma fram, fyrir hönd Íslands, annar rauður gæðingur, Feykir frá Háholti, undan Andvara frá Ey I og Eflingu frá Háholti sem eru undan Ham frá Þóroddsstöðum og Kötlu frá Hrepphólum. Feykir var sýndur í fyrsta sinn á Héraðssýningu á Gaddstaðaflötum í vor og hlaut hann öruggt einkunnarlágmark fyrir Landsmót, 8,37 í aðaleinkunn. Hann var hins vegar ekki sýndur á Landsmótinu. Fyrir sköpulag hefur Feykir hlotð 8,37, þar af 9 fyrir samræmi, 8,5 fyrir háls/herðar/bóga, bak og lend, fótagerð og hófa. Feykir hlaut 8,29 fyrir hæfileika, þar af einkunnina 8,5 fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag, fegurð í reið og fet, og einkunnina 9 hlaut hann fyrir stökk.
Í elsta flokki hryssa mun koma fram stórglæsileg 12 vetra gamla hvíta hryssu, Gjöf frá Magnússkógum. Hún var í fyrsta sinn sýnd í kynbótadóm í Svíþjóð í haust og fór svo fyrir dóm í sumar og hlaut í aðaleinkunn 8,55. Fyrir sköpulag hefur Gjöf hlotið 8,22 og fyrir hæfileika 8,76. Myndir af þessari töfrandi hryssu má nálgast hér.
Álfsdóttirin Rauðhetta frá Kommu heillaði marga á Landsmóti, og hlaut hún þriðju verðlaun í flokki 6 vetra hryssa með aðaleinkunnina 8,43. Móðir hennar er Ljósvakadóttirin Vilma frá Akureyri. Rauðhetta er ein fjölmargra hrossa út af Oddi frá Selfossi líkt og t.d. Spuni frá Vesturkoti. Fyrir sköpulag hlaut Rauðhetta 8,11 og 8,65 fyrir hæfileika, þar af hlaut hún einkunnina 9 fyrir tölt, vilja og geðslag og fegurð í reið.
Þá mun Helga Una Björnsdóttir færa áhorfendum Heimsmeistaramótsins sýningu á hinni lipru Smá frá Þúfu sem var níunda efsta hrossið í firnasterkum flokki 5 vetra hryssa á Landsmóti. Hún er undan tveimur Orraafkvæmum, Sveini-Hervari og Dröfn frá Þúfu og hlaut 8,27 í aðaleinkunn. Einkunnina 7,88 fékk hún fyrir sköpulag og 8,53 fyrir hæfileika, þar af 9 fyrir skeið og vilja og geðslag.
Rauðir hestar eru í fyrirrúmi í þessum glæsta hópi eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH