Glæsileg endurkoma Listar frá Vakurstöðum – myndir
Árni Björn Pálsson og afrekshryssan List frá Vakurstöðum komu sáu og sigruðu í töltkeppni Meistaradeildar Norðurlands, KS deildar, sem fram fór í gærkvöldi í Svaðastaðahöll.
List er á 13. vetri undan Óði frá Brún og Lyftingu frá Ysta-Mó. Í kynbótadómi árið 2006 fékk List einkunnina 10 fyrir tölt og 8,44 í aðaleinkunn, en hún keppti það sama ár töltkeppni Landsmótsins, þá setin af Huldu Gústafsdóttur. List hefur eignast þrjú afkvæmi.
Úrslit mótsins urðu eftirfarandi:
A-úrslit
1. Árni Björn Pálsson List frá Vakurstöðum 8,39
2. Ólafur Magnússon Gáski frá Sveinsstöðum 7,78
3. Eyjólfur Þorsteinsson Klerkur frá Bjarnanesi 7,61
4. Bjarni jónasson Komma frá Garði 7,61
5. Sölvi Sigurðarson Nanna frá Halldórsstöðum 6,72
B-úrslit
5. Sölvi Sigurðarson Nanna frá Halldórsstöðum 7,00
6. Tryggvi Björnsson Júpiter frá Egilsstaðabæ 6,94
7. Baldvin Ari Guðlaugsson Blær frá Kálfholti 6,78
8. Hörður Óli Sæmundarson Lína frá Vatnsleysu 6,72
9. Ísólfur L Þórisson Freymóður frá Feti 6,50
Forkeppni
Árni Björn Pálsson List frá Vakurstöðum 7,50
Ólafur Magnússon Gáski frá Sveinsstöðum 7,30
Eyjólfur Þorsteinsson Klerkur frá Bjarnanesi 7,30
Bjarni jónasson Komma frá Garði 7,13
Hörður Óli Sæmundarson Lína frá Vatnsleysu 6,83
Tryggvi Björnsson Júpiter frá Egilsstaðabæ 6,70
Sölvi Sigurðarson Nanna frá Halldórsstöðum 6,70
Ísólfur L Þórisson Freymóður frá Feti 6,43
Baldvin Ari Guðlaugsson Blær frá Kálfholti 6,37
Mette Mannseth Stormur frá Herríðarhóli 6,30
Magnús Bragi Magnússon Vafi frá Y-Mói 6,27
Elvar Einarsson Lárus frá S-Skörðugili 6,27
Þorsteinn Björnsson Haukur frá Flugumýri 2 6,13
Riikka Anniina Gnótt frá Grund 2 6,07
Þórarinn Eymundsson Fold frá Miðsitju 6,00
Ragnar Stefánsson Sif frá Söguey 5,63
Jón Herkovic Formúla frá Vatnsleysu 5,47
Eyjólfur Þorsteinsson leiðir enn í stigakeppni deildarinnar, nú þegar keppni í þremur greinum er lokið. Bjarni Jónasson er þó ekki langt undan. Árni Björn Pálsson skaust upp í 3.- 4. sæti við hlið Ólafs Magnússonar með sigrinum í gær. Staða í stigakeppni er eftirfarandi:
1. Eyjólfur Þorsteinsson 24,5
2. Bjarni Jónasson 20,5
3. Ólafur Magnússon 16
4. Árni Björn Pálsson 16
5. Tryggvi Björnsson 12
6. Þórarinn Eymundsson 11
7. Hörður Óli Sæmundarson 10
8. Sölvi Sigurðarson 7,5
9. Baldvin Ari Guðlaugsson 7
10. Ísólfur Líndal 6,5
11. Mette Mannseth 4
12. Erlingur Ingvarsson 3
13. Elvar Einarsson 0
14. Magnús B Magnússon 0
15. Jón Herkovic 0
16. Þorsteinn Björnsson 0
17. Riikka Anniina 0
18. Ragnar Stefánsson 0
Myndir frá mótinu eru væntanlegar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH