Glæsileg skrúðreið
Yfir hundrað hross tóku þátt í hátíðlegri skrúðreið Hestadaga í Reykjavík í miðbænum í dag.
Reiðin fór niður Laugaveg, fram hjá Alþingishúsinu og meðfram tjörninni og hana leiddu hana skrúðklæddir reiðmenn, í þjóðbúningum, konurnar sátu á söðli. Þá fylgdu þáttakendur frá hestamannafélögunum Andvara, Fáki, Gusti, Herði, Sóta og Sörla ásamt fulltrúum Landssambands Hestamanna.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá því í dag.
Dagskrá hestadaga lýkur á morgun með stórsýningunni Æskan og hesturinn í reiðhölli Fáks í Víðidal. Tvær sýningar fara fram, ein kl. 13 og önnur kl. 16 og er ókeypis aðgangur að þeim. Óhætt er að hvetja alla áhugasama um hestinn að fjölmenna í Víðidal á morgun!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH