Glæsileg úrtaka og Gæðingamóti á Brávöllum Selfossi – úrslit

  • 5. júní 2011
  • Fréttir
Glæsileg úrtaka og Gæðingamóti á Brávöllum Selfossi - úrslit

Úrtaka fyrir LM og opnu gæðingamóti Sleipnis,Ljúfs og Háfeta er nú lokið.

“Í öllum flokkum var hart barist og ljóst að keppni á landsmóti þetta árið verður hörð. Mótið tókst frábærlega í alla staði tímasetningar stóðust undantekningarlaust og veðrið lék við áhorfendur þó svo að náttúran hafi séð um það að bleyta völlinn einstaka sinnum. Sigursteinn Sumarliðason Vann A-flokkinn á Álm frá Skjálg og vann þar með Sleipnisskjöldinn annað árið í röð á honum, til að glöggva fólk er sleipnisskjöldurinn orðinn víðfrægur og hefur verið gefinn hæsta alhliðagæðing á sleipnismótum allt frá árinu 1950. B-flokkinn vann Sigursteinn svo á stórgæðingnum Ölfu frá Blesastöðum 1A með hvorki meira né minna en 9,09 í einkunn. Einar Öder var með gæðinginn sinn Glóðafeykir frá Halakoti í öðru sæti í B-flokki og í öðru sæti í tölti eftir forkeppni, Einar öder varð einnig annar í A-flokk með  Þeyr frá Akranesi. í ungmennaflokki var keppnin spennandi og réðust úrslit á aukastöfum en það var Bjarni Sveinsson og Leiftur frá lundum sem unnu þar Alexöndru Arnarsdóttur og Katarínu frá Tjarnalandi með einkunina 8,44. í unglingaflokki var efst í úrslitum Dagmar Öder Einarsdóttir með merina Glódísi frá Halakoti og einkunina 8,52. Ljóst er að mikil gróska er í æskulýðsstarfi hjá félögunum hér á svæðinu því börnin stóðu sig með stakri prýði, Glódís Rún Sigurðardóttir átti kraftmikla og fallega sýningu á gæðingnum Kamban frá Húsavík en þau fengu 8,96 í einkun, á eftir henni kom svo Þorgils Kári Sigurðsson og Sýnir frá Hallgeirseyjarhjáleigu með 8,34. Töltmót var svo haldið á laugardagskvöldinu við úrvals aðstæður. John Sigurjónsson á Tón frá Melkoti vann A-úrslitin með einkuna 8,22 sem er með hærri einkunum ársins. á eftir honum var það Jón Þorberg Steindórsson og Tíbrá frá Minni-völlum með 7,67 í einkunn.

Landsmótskandidatar fyrir þessi félög eru því:

Sleipnir

A-Flokkur: Álmur frá Skjálg og Sigursteinn Sumarliðason,Þeyr frá Akranesi og Einar Öder Magnússon,Friður frá Miðhópi og Sigursteinn Sumarliðason og Snæsól frá Austurkoti og Páll Bragi Hólmarsson

B-Flokkur : Glóðafeykir frá Halakoti og Einar Öder Magnússon,Alfa frá Blesastöðum og Sigursteinn Sumarliðason, Loki frá Selfossi og Ármann Sverrisson og Sjóður frá Sólvangi og Elsa Magnúsdóttir

Ungmennaflokkur : Röskur frá Sunnuhvoli og Arnar Bjarki Sigurðsson, Alexandra Arnarsdóttir og Katarína frá Tjarnalandi,Leiftur frá Laugardælum og Bjarni Sveinsson og Fáni frá Kílhrauni og Emilia Anderson

Unglingaflokkur : Simbi frá Ketilsstöðum og Berglind Rós Bergsdóttir, Fífill frá Hávarðakoti og Díana Kristín Sigmarsdóttir,Glódís frá Halakoti og Dagmar Öder Einarsdóttir og Dökkvi frá Ingólfshvoli og Sigríður Óladóttir

Barnaflokkkur :  Dagbjört Skúladóttir og Tígull frá Runnum, Ásthildur Hrund Stefánsdóttir og Dynjandi frá Höfðaströnd,Þorgils Kári Sigurðsson og Sýnir frá Hallgeirseyjarhjáleigu og Sólveig Ágústa Ágústsdóttir og Mökkur frá Litlu-Sandvík

Ljúfur

A-flokkur : Vonandi frá Bakkakoti og Arnar Bjarki Sigurðsson

B-flokkur : Skrámur frá Kirkjubæ og Sissel Tveten og Tangó frá Sunnuhvoli og Arnar Bjarki Sigurðsson

Ungmennaflokkur : Óskar frá Hafnarfirði og Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir

Unglingaflokkur : Auður frá Kjarri og Eggert Helgason og Ómur frá Hjaltastöðum og Hildur G. Benediktsdóttir

Barnaflokkur :  Glódís Rún Sigurðardóttir og Kamban frá Húsavík og Elísa Benedikta Andrésdóttir og Flötur frá Votmúla 1

Háfeti

A-flokkur : Tindur frá Þorlákshöfn og Jóhann G. Jóhannesson

B-flokkur :  Gylmir frá Enni og Rúnar Guðlaugsson

Barnaflokkur :  Katrín Eva Grétarsdóttir og Gnýr frá Árbæ, ,” segir í frétt frá mótanefnd Sleipnis.

Öll úrslit mótsins eru svo hér að neðan.

Tölt                                                           
1 John Sigurjónsson               Tónn frá Melkoti            8,22
2 Jón Þorberg Steindórsson              Tíbrá frá Minni-Völlur            7,67
3-4 Sævar Örn Sigurvinsson               Orka frá Þverárkoti            7,28
3-4 Fanney Guðrún Valsdóttir   Fókus frá Sólheimum            7,28
5 Birgitta Dröfn Kristinsdóttir   Vera frá Laugarbökkum            6,94
6 Rósa Birna Þorvaldsdóttir              Kolbrún frá Efri-Gegnishólum            6,89
 
A-flokkur
1 Álmur frá Skjálg            Sigursteinn Sumarliðason   8,81
2 Þeyr frá Akranesi            Einar Öder Magnússon               8,62
3 Snæsól frá Austurkoti            Páll Bragi Hólmarsson               8,55
4 Þytur frá Kálfhóli 2            Elsa Magnúsdóttir          8,53
5 Nói frá Votmúla 1            Freyja Hilmarsdóttir              8,45
6 Breki frá Eyði-Sandvík            Bjarni Sveinsson               8,32
7 Friður frá Miðhópi            Árni Sigfús Birgisson              8,28
8 Frosti frá Selfossi            Halldór Vilhjálmsson               7,67
 
B-flokkur
1 Alfa frá Blesastöðum 1A            Sigursteinn Sumarliðason               9,09
2 Glóðafeykir frá Halakoti            Einar Öder Magnússon              8,84
3 Loki frá Selfossi            Ármann Sverrisson               8,54
4 Sjóður frá Sólvangi            Elsa Magnúsdóttir   8,38
5 Friður frá Halakoti            Svanhvít Kristjánsdóttir              8,28
6 Dagur frá Brattholti            Sævar Örn Sigurvinsson   8,25
7 Skrámur frá Kirkjubæ            Sissel Tveten               8,20
8 Flúð frá Vorsabæ II            Erla Björk Tryggvadóttir               8,18
 
Ungmennaflokkur
1 Bjarni Sveinsson               Leiftur frá Laugardælum            8,44
2 Alexandra Arnarsdóttir               Katarína frá Tjarnarlandi            8,44
3 Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir               Óskar frá Hafnarfirði            8,32
4 Emilia Andersson               Fáni frá Kílhrauni            8,24
5 Guðbjörn Tryggvason               Þota frá Gerðum            8,17
6 Bára Bryndís Kristjánsdóttir               Eskill frá Lindarbæ            8,16
 
Unglingaflokkur
1 Dagmar Öder Einarsdóttir               Glódís frá Halakoti            8,52
2 Díana Kristín Sigmarsdóttir              Fífill frá Hávarðarkoti            8,40
3 Berglind Rós Bergsdóttir               Simbi frá Ketilsstöðum            8,37
4 Hjördís Björg Viðjudóttir            Perla frá Langholti II            8,33
5 Bára Steinsdóttir               Spyrnir frá Grund II            8,31
6 Sigríður Óladóttir               Dökkvi frá Ingólfshvoli            8,20
7 Hildur G. Benediktsdóttir  Ómur frá Hjaltastöðum            8,10
8 Eggert Helgason               Auður frá Kjarri 7,96
 
Barnaflokkur
1Glódís Rún Sigurðardóttir               Kamban frá Húsavík            8,98
2 Þorgils Kári Sigurðsson               Sýnir frá Hallgeirseyjarhjáleigu            8,34
3 Dagbjört Skúladóttir               Tígull frá Runnum            8,32
4 Katrín Eva Grétarsdóttir                        Gnýr frá Árbæ            8,21
5 Þórunn Ösp Jónasdóttir                        Ösp frá Litlu-Sandvík            8,17
6 Ásthildur Hrund Stefánsdóttir            Dynjandi frá Höfðaströnd            8,05
7 Sólveig Ágústa Ágústsdóttir               Mökkur frá Litlu-Sandvík            7,99
8 Vilborg Hrund Jónsdóttir               Skógardís frá Efsta-Dal I            0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link