Glæsisýningar í B-flokki
Þau eru glæsileg, tilþrifin sem sjást hér á Hvammsvelli, þar sem forkeppni í B-flokki gæðinga fer fram. Dómarar hafa ekki sparað stóru tölurnar.
Sleipnisbikarhafinn Álfur frá Selfossi hlaut t.a.m. einkunnina 8,82 og er sem stendur í öðru sæti. Hann er setinn af eiganda sínum Christinu Lund.
Þá skaust hryssan Krít frá Miðhjáleigu og Leó Geir Arnarsson í efsta sæti þegar þau hlutu einkunnina 8,92.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH