Gleði og grátur á HM
Gústaf Ásgeir ríður sigurhringinn með íslenska fánann
Gríðarlegur fjöldi fólks er nú komið á heimsmeistaramótið og stemningin er eftir því.
Margir Íslendingar lögðu land undir fót til að berja dýrðina augum og sameinast í fagnaðarlátunum þegar Íslendingur kemur í braut.
Úrslit slaktaumatölts ungmenna :
01: Charlotte Passau [DE] – Uni vom Kronshof – 6,92
02: Christopher Weiss [DE] – Vígur frá Eikarbrekku – 6,84
03: Carina Perndl [AT] – Reidartýr vom Stefanihof – 6,83
04: Gústaf Ásgeir Hinriksson [IS] – Björk frá Enni – 6,21
05: Arnella Nyman [YR] [FI] – Skarði frá Kvistum – 1,33
Hér eru nokkrar myndir frá stemningunni í Berlín í dag og af úrslitum ungmenna í slaktaumatölti.

Charlotte Passau frá Þýskalandi er heimsmeistari í slaktaumatölti ungmenna árið 2013

Charlotte felldi tár í verðlaunaafhendingunni

Carina Perndl var sátt við þriðja sætið

Carina Perndl þakkaði Reiðartýr vel fyrir vel unnið starf

Glæsileg fánareið ungmennana í slaktaumatölti

Mikill fagnaðarlæti heyrðust hjá Íslendingunum í stúkunni

Þýsku áhorfendurnir voru í mikilli samkeppni við íslensku áhorfendurna í því að láta heyra vel í sér
– HHG
Styttu haustið með EiðfaxaTV