Glíma frá Bakkakoti mætir á Fáka og fjör

  • 11. apríl 2012
  • Fréttir
Glíma frá Bakkakoti mætir á Fáka og fjör

Frá Hestamannafélaginu Létti á Akureyri berast þær fréttir að stutt sé í Fáka of fjör, stórveislu hestamanna á Akureyri en hátíðin fer fram laugardaginn 14. apríl og hefst kl. 18 í TopReiterhöllinni.  

 
Dagskráin er þétt og úrval góðra hrossa kemur þar fram.  Fyrstar skal telja hæfileikabomburnar og alsysturnar Glímu frá Bakkakoti og Spá frá Eystra-Fróðholti.  Þessar stöllur skarta mörgum 9 og 9,5 í hæfileikum sínum.  Ársæll bóndi lætur þó ekki þar við sitja og kemur með enn eitt Sæsafkvæmið en Óðinn frá Eystra-Fróðholti mun einnig mæta í höllina.  Höfðinginn Aron frá Strandarhöfði mætir ásamt nokkrum afkvæmum sínum.  Þar á meðal skal telja þá Seif frá Prestsbakka, Arnar frá Blesastöðum og Þey frá Prestsbæ.  Hestagullið og Leiknisdóttirin Flétta frá Árbakka mætir á sýninguna, keppnishrossabúið Efri-Rauðilækur verður með sýnishorn af sinni keppnishrossaræktun og ræktunarbú HEÞ, Ytri-Bægisá I, skartar einnig flottum hópi.  Þetta og mun meira verður í boði á Fákum og fjöri á laugardaginn.  Meira þegar nær dregur.  Forsala miða hefst á morgun í Fákasport og Líflandi á Akureyri og kostar miðinn 2500 kr. en frítt er fyrir 12 ára og yngri.  
 
Mögnuð fjölskylduskemmtun fyrir allt hestaáhugafólk.  
Verið velkomin á Fáka og fjör 2012. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link