Góð tilþrif á Icehorse Festival í Herning

  • 16. apríl 2026
  • Fréttir

Tekla og Órion frá Lækjamóti sigurvegarar í slaktaumatölti. Ljósmynd: Anja Mogensen

Haldið næst árið 2028

Eitt stærsta innanhúsmót með íslenska hesta sem haldið er í Evrópu, Icehorse festival, fór fram í Herning í Danmörku um síðustu helgi. Um er að ræða íþróttakeppni, stóðhestakeppni og ýmsar aðrar uppákomur auk markaðstorga og almennrar gleði.

Keppt er í tveimur styrkleikaflokkum það er bæði meistaraflokki, þar sem einn knapi er inná í einu í forkeppni og einnig í greinum þar sem fleiri eru inn á og. stjórnað af þul. Góð þátttaka er jafnan í mótinu og góðir knapar og hestar á ráslista.

  • Rasmus Møller Jensen og Röskur fra Skjød unnu tölt T1 með 7,78 í úrslitum
  • Anne Frank Andrwesen og Vökull frá Leirubakka unnu fimmgang F1 með 7,19 í úrslitum
  • Vicky Eggertsson og Tristan frá Stekkhólum unnu fjórgang V1 með 7,00 í úrslitum
  • Tekla Petersson og Óríon frá Lækjamóti unnu slaktaumatölt T2 með 7,50 í úrslitum
  • Hljómur frá Auðsholtshjáleigu sýndur af Dennis Hedebo Johansen sigraði í stóðhestakeppni

Icehorse verður nú í framtíðinni haldið á tveggja ára fresti og er því næsta mót árið 2028.

Hægt er að kynna sér nánar úrslit mótins á IceTest með því að smella hér.

Rasmus Mōller og Röskur. Ljósmynd: Anja Mogensen

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link