„Gott andrúmsloft og frískandi veður,“ segir Sigurður Matthíasson-

  • 24. júní 2011
  • Fréttir
"Gott andrúmsloft og frískandi veður," segir Sigurður Matthíasson-

Hestar og menn eru farin að flykkjast í Skagafjörð en Landsmót hefst formlega á sunnudaginn. Samkvæmt upplýsingum frá aðstandendum Landsmóts er búist er við að um 10.000 manns og 800-900 hross verði á Vindheimamelum í vikunni þegar mest lætur.

Eiðfaxi heyrði í Sigurði  Vigni Matthíassyni sem var, ásamt Eddu Rún Ragnarsdóttur og fylgdarliði sínu, búin að koma sér fyrir í Skagafirðinum. „Við erum með 22 hross hér sem eru að fara að keppa í ýmsum greinum. Edda keppir í A-flokki og kynbótasýningum, ég fer í A-flokk, B-flokk, á kynbótasýningar og í kappreiðar. Svo eru krakkar á okkar vegum, þau Júlía Lindmark, Sóley Þórsdóttir og Bjarki Freyr Arngrímsson að keppa í ungmenna- og unglingaflokki,“ sagði Sigurður sem var í þann mund að leggja á fyrsta hrossið til að prófa vellina. „Aðstaðan lítur ofsalega vel út, hér er frískandi veður og andrúmsloftið gott. Allir eru hjálplegir og það fer mjög vel um bæði okkur og hrossin.“

Sólin mun fela sig bak við ský fyrstu daga Landsmóts ef marka má veðurspár. Búist er við 7-10 stiga hita, nokkrum vindi og skýjuðum himni þó ekki eigi að rigna. Samkvæmt langtímaspám á svo að birta til síðari part vikunnar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link