Gott en langt mót Meistaradeildar
Það er ekki hægt að segja annað en að fyrsta mót Meistaradeildar í hestaíþróttum hafi byrjað vel. Fullt var út úr dyrum í Ölfushöllinni í kvöld og stórglæsilegir hestar dönsuðu um gólf hallarinnar.
Það var Sigurður Sigurðarson, Lýsi, á Loka frá Selfossi sem kom, sá og sigraði í kvöld. Þeir félagar voru efstir eftir forkeppni með einkunnina 7,57 og þegar A-úrslitunum var lokið stóðu þeir enn efstir með einkunnina 7,63. Glæsilegar einkunnir þar á ferðinni.
Í öðru sæti eftir forkeppni sem og úrslit var Hulda Gústafsdóttir, Árbakki/Norður-Götur, á Kjuða frá Kirkjuferjuhjáleigu með einkunnina 7,20 í forkeppni og 7,50 í úrslitum.
Jafnir í 3 – 4 sæti í úrslitunum urðu þeir Sigurbjörn Bárðarson, Lýsi, á Penna frá Glæsibæ og Hinrik Bragason, Árbakki/Norður-Gotur, á Sigri frá Hólabaki en þeir voru með einkunnina 7,40.
Í liðakeppninni var það lið Árbakka/Norður-Gatna sem skaust á toppinn með 48 stig, í öðru sæti er Lýsi með 45,5 stig og í því þriðja Top Reiter/Ármót/66°North með 37 stig.
Sigurður Sigurðarson, Lýsi, fór á toppinn í einstaklingskeppninni með sigrinum í kvöld og er með 12 stig, Hulda er önnur með 10 stig og Sigurbjörn og Hinrik jafnir í því þriðja með 7,5 stig.
Hér að neðan eru öll úrslit kvöldsins:
Liðakeppni:
Sæti Lið 4-gangur
1 Árbakki/Norður-Götur 48
2 Lýsi 45,5
3 Top Reiter/Ármót/66°North 37
4 Hrímnir 29,5
5 Auðsholtshjáleiga 26,5
6 Spónn.is 22
7 Málning/Ganghestar 20,5
Einstaklingskeppni:
Sæti Nafn Lið 4-gangur
1 Sigurður Sigurðarson Lýsi 12
2 Hulda Gústafsdóttir Árbakki/Norður-Götur 10
3 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi 7,5
3 Hinrik Bragason Árbakki/Norður-Götur 7,5
5 Bergur Jónsson Top Reiter/Ármót/66°North 6
6 Sigursteinn Sumarliðason Spónn.is 5
7 Snorri Dal Hrímnir 4
8 Hekla Katharína Kristinsdóttir Auðsholtshjáleiga 3
9 Viðar Ingólfsson Hrímnir 2
10 Jakob Sigurðsson Top Reiter/Ármót/66°North 1
Forkeppni
Sæti Nafn Lið Hestur Einkunn
1 Sigurður Sigurðarson Lýsi Loki frá Selfossi 7,57
2 Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu 7,20
3 Sigursteinn Sumarliðason Spónn.is Alfa frá Blesastöðum 7,17
4 Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Sigur frá Hólabaki 7,10
5 Bergur Jónsson Top Reiter / Ármót Vakar frá Ketilsstöðum 7,07
6 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Penni frá Glæsibæ 7,03
7 Hekla Katharína Kristinsdóttir Auðsholtshjáleiga Gautrekur frá Torfastöðum 6,90
8 Snorri Dal Hrímnir Gustur frá Stykkishólmi 6,83
9 Bylgja Gauksdóttir Auðsholtshjáleiga Hersveinn frá Lækjarbotnum 6,77
10 Viðar Ingólfsson Hrímnir Nasi frá Kvistum 6,73
10 Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Ófelía frá Holtsmúla 1 6,73
12 Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Vignir frá Selfossi 6,67
13 Sigurður Vignir Matthíasson Málning / Ganghestar Kall frá Dalvík 6,67
14 Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót Hrafndynur frá Hákoti 6,63
15 Anna Valdimarsdóttir Málning / Ganghestar Ketill frá Vakurstöðum 6,60
16 Sigurður Óli Kristinsson Lýsi Alvar frá Nýjabæ 6,57
17 Sólon Morthens Spónn.is Glæsir frá Feti 6,50
18 John Kristinn Sigurjónsson Málning / Ganghestar Kraftur frá Strönd 6,43
19 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Glefsa frá Auðsholtshjáleigu 6,40
20 Arnar Bjarki Sigurðarson Hrímnir Röskur frá Sunnuhvoli 6,40
21 Ævar Örn Guðjónsson Spónn.is Borði frá Fellskoti 6,13
B-úrslit
Sæti Knapi Lið Hestur Einkunn
6 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Penni frá Glæsibæ 7,20
7 Snorri Dal Hrímnir Gustur frá Stykkishólmi 7,13
8 Hekla Katharína Kristinsdóttir Auðsholtshjáleiga Gautrekur frá Torfastöðum 7,10
9 Viðar Ingólfsson Hrímnir Nasi frá Kvistum 6,93
10 Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter/Ármót/66°North Ófelía frá Holtsmúla 1 6,77
11 Bylgja Gauksdóttir Auðsholtshjáleiga Hersveinn frá Lækjarbotnum 6,07
A-úrslit
Sæti Knapi Lið Hestur Einkunn
1 Sigurður Sigurðarson Lýsi Loki frá Selfossi 7,63
2 Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu 7,50
3 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Penni frá Glæsibæ 7,40
3 Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Sigur frá Hólabaki 7,40
5 Bergur Jónsson Top Reiter / Ármót Vakar frá Ketilsstöðum 7,3
6 Sigursteinn Sumarliðason Spónn.is Alfa frá Blesastöðum 7,27
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH