Grímutölt Harðar
Laugardaginn 31.janúar var Grímutölt Harðar haldið í reiðhöllinni en löng hefð er fyrir því að halda slíkt mót í upphafi árs.
Búningar voru að venju mjög flottir og sást það glöggt að margir höfðu lagt mikið í gervin sín. Hestarnir voru sumir hverjir í afar flottum búningum og má segja að þrátt fyrir stutta inniveru og þjálfun hafi þeir virkilega staðið fyrir sínu í töltinu.
Síðastliðin ár hafa ákveðnir aðilar lagt mikinn metnað í að vinna þessa keppni í fullorðinsflokk og sumir unnið búningaverðlaunin aftur og aftur við mikinn fögnuð áhorfenda og í ár bættust við nokkrir nýjir en mikið væri gaman ef að fleiri skelltu sér með á næsta ári, þetta er nefnilega agalega skemmtilegt!
Hér eru úrslit Grímutöltsins:
Barnaflokkur:
-
sæti Helga Stefánsdóttir á Kolskegg frá Hæli
-
sæti Kristrún Bender á Áfanga
-
sæti Íris Birna Gauksdóttir á Sleipni frá Arnarstaðarkoti
-
sæti Elsa Bjarnadóttir á Hlyn frá Reykjavík
-
sæti Pétur Ómar Þorsteinsson á Fönix frá Ragnheiðarstöðum
Búningaverðlaun: Viktoría Von á einhyrningi.
Unglingaflokkur:
1.sæti Anton Hugi á Skímu frá Hvítanesi
2.sæti Hrafndís katla á Jódísi frá Þúfu
3.sæti Snædís Birta á Róðu frá Reynisvatni
4.sæti Thelma Rut á Goða frá Hólmahjáleigu
Búningaverðlaun: Hrafndís Katla/Harry Potter.
Ungmenna og fullorðinsflokkur:
1.sæti Fía Ruth á lóðari frá Tóftum
2.sæti Katarína Sand Guðmundsdóttir á Hylli frá Hvítárholti
3.sæti Anna Dís á Val frá Laugabóli
4.sæti Ragnar Aðalsteinsson á Fókusi frá Brattholti
5.sæti Sól Aðalsteinsdóttir á Lyftingu frá Miðkoti
Búningaverðlaun: Ragnar Aðalsteinsson/ Tinman
Í ár ákváðum við að prufa að halda Grímuleika sem byggjast upp á Hugmyndaflugi, þjálni/samspili, styrkleika æfinga og skemmtanagildi, áhorfendur skemmtu sér mikið yfir þessum flottu sýningum sem okkur var boðið upp á, en í atriðunum voru allt frá einum keppanda upp í 11 svo augljóslega voru atriðin ólík, sum ótrúlega fyndin og önnur afar vel æfð og flókin.
Það verður gaman að sjá hversu margir mæta á næstu leika í vetur sem verða auglýstir síðar.
Hér eru úrslit Grímuleikanna.
Barnaflokkur:
-
sæti Íris Birna á Sleipni frá Arnarstaðarkoti – Simbi úr Lion king
-
sæti Íþróttaklúbbur Harðar -Töltslaufur
Elsa
Kiddý
Dagur
Andri
Melkorka
Vaka
Viktoría Von
Helga
Thelma
Emelía
Unglingaflokkur:
1.sæti Snædís Birta á Róðu frá Reynisvatni og
Thelma Rut á Goða frá Hólamahjáleigu – Ný gift.
Ungmenna og fullorðinsflokkur:
-
sæti Anna Dís á Val frá Laugabóli og Fía Rut á Lóðari frá Tóftum – Jing & Jang
-
sæti Katarína Sand Guðmundsóttir, Sanna og Hyllir frá Hvítárholti – Lilla, Kasper og Fjalla-jarpur.
-
sæti Valla Jóna á Megasi sínum frá Oddhól – Brjálaða Bína
Opni flokkurinn:
-
sæti Ragnheiður Þorvaldsdóttir á Hrafnagaldri – Blómálfur
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH