Norðurlandamót Guðmar Hólm Norðurlandameistari ungmenna

  • 11. ágúst 2024
  • Fréttir

Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal er Norðurlandameistari ungmenna Ljósmynd: Anja Mogensen

Hekla Rán í fimmta sæti

Úrslitum í ungmennaflokki í gæðingakeppni er nú lokið og var það Guðmar Hólm Ísólfsson líndal sem vann þau og er Norðurlandameistari árið 2024.

Guðmar Hólm keppti á stóðhestinum Eyvar frá Álfhólum undan Þrumufleyg og Móeyju frá Álfhólum, hlutu þeir í einkunn 8,676. Í öðru sæti varð Miina Sarsama á Freif fra Kaakkola með 8,672, en hún keppir fyrir hönd Finnland. Í þriðja sætinu varð Alma Yr á Amadeus från Allemansängen með 8,584 í einkunn en Alma keppir fyrir hönd Svíþjóðar.

Hekla Rán Hannesdóttir á Huginn frá Halakoti varð í fimmta sæti með 8,548 í einkunn.

A-úrslit í ungmennaflokki

#. Knapi Hestur Einkunn
1 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Eyvar frá Álfhólum 8.676
2 Miina Sarsama Freir fra Kaakkola 8.672
3 Alma Yr Jökullsdotter Kelin Amadeus från Allemansängen 8.584
4 Camilla Fredslund Kragh-Hansen Fiðla frá Strandarhjáleigu 8.548
5 Hekla Rán Hannesdóttir Huginn frá Halakoti 8.544
6 Alva Bonde Hreimur frá Mosfellsbæ 8.528
7 Kathrine Eskesen Hrókur frá Garðshorni 8.496
8 Tove Johansdotter Farsæll frá Jórvík 8.488

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link