Guðmundur heldur fyrirlestur í kvöld
Skeiðfélagið minnir á fyrirlestur sem fer fram í kvöld föstudagskvöldið 27.febrúar í Hlíðskjálf á Selfossi í tilkynningu.
„Húsið opnar klukkan 19:30 og fyrirlesturinn hefst klukkan 20:00. Fyrirlesarinn er enginn annar en Guðmundur Einarsson.
Guðmund þarf vart að kynna fyrir fólki sem fylgst hefur með hestamennsku síðastliðna tvo áratugi. Afrek hans á keppnisvellinum eru mörg og of mikið væri að að telja þau öll upp hér. En helstu afrek eru Heimsmeistari í gæðingaskeiði 2009 á Sprota frá Sjávarborg með einkunnina 8,67, Silfur í 250. m skeið á Sprota frá Sjávarborg HM 2009 með tímann 21,33 og reiðmennskuverðlaun FEIF (Feif feather price) á HM 2009.
Inn á fyrirlesturinn kostar litlar 1000 krónur íslenskar og hlökkum við til að sjá sem flesta. Fólk er beðið að taka með sér pening í reiðufé því enginn posi er á staðnum. Kaffiveitingar verða seldar í hléi.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH