Gullmótið: Árni Björn og Kári sigurvegarar í fimmgangi
Það voru HM fararnir Árni Björn Pálsson og Aris frá Akureyri sem báru sigur úr býtum í fimmgangi í dag. Þeir hlutu einkunnina 7,55 í úrslitum. Annar varð Eyjólfur Þorsteinsson á Krafti frá Efri-Þverá með einkunnina 7,17 og þriðja varð Edda Rún Ragnarsdóttir á Hreimi frá Fornusöndum með einkunnina 7,05.
Í ungmennaflokki var það Kári Steinsson á Funa frá Hóli sem sigraði með einkunnina 6,71.
Fimmgangur opinn
1 Árni Björn Pálsson / Aris frá Akureyri 7.55
2 Eyjólfur Þorsteinsson / Kraftur frá Efri-Þverá 7.17
3 Edda Rún Ragnarsdóttir / Hreimur frá Fornusöndum 7.05
4 Sylvía Sigurbjörnsdóttir / Þröstur frá Hólum 6.93
5 Haukur Baldvinsson / Falur frá Þingeyrum 6.83
6 Sigurður Vignir Matthíasson / Hringur frá Fossi 6.81
7 Viðar Ingólfsson / Aspar frá Fróni 6.45
FImmgangur ungmenna
1 Kári Steinsson / Funi frá Hóli 6.71
2 Sigurður Rúnar Pálsson / Glettingur frá Steinnesi 6.69
3 Ragnar Tómasson / Þóra frá Litla-Moshvoli 5.81
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH