Gullmótið: John og Tónn sigruðu töltið
Þá er síðustu úrslitum á Gullmótinu lokið en það voru tölt úrslit. John Sigurjónsson og Tónn frá Melkoti báru sigur úr býtum með einkunnina 8,44. Frábær árangur þar. Í öðru sæti varð Sigurbjörn Bárðarson á Jarli frá Mið-Fossum með einkunnina 7,83 og í því þriðja Berglind Ragnarsdóttir á Frakk frá Laugavöllum með einkunnina 7,72.
Í ungmennaflokki sigraði Agnes Hekla Árnadóttir á Vigni frá Selfossi með einkunnina 7,44 og í unglingaflokki sigraði Harpa Sigríður Bjarnadóttir á Gusti frá Margrétarhofi með einkunnina 6,56.
Tölt opinn
1 John Sigurjónsson / Tónn frá Melkoti 8.44
2 Sigurbjörn Bárðarson / Jarl frá Mið-Fossum 7.83
3 Berglind Ragnarsdóttir / Frakkur frá Laugavöllum 7.72
4 Högni Sturluson / Ýmir frá Ármúla 7.5
5 Jón Þorberg Steindórsson / Tíbrá frá Minni-Völlum 7.33
6 Ólafur Magnússon / Gáski frá Sveinsstöðum 7.17
Tölt ungmenna
1 Agnes Hekla Árnadóttir / Vignir frá Selfossi 7.44
2 Sara Sigurbjörnsdóttir / Hálfmáni frá Skrúð 7.28
3 Óskar Sæberg / Fálki frá Múlakoti 7.11
4 – 5 Vigdís Matthíasdóttir / Stígur frá Halldórsstöðum 7.06
4 – 5 Ragnar Tómasson / Sleipnir frá Árnanesi 7.06
6 Kári Steinsson / Snerra frá Svalbarðseyri 6.33
Tölt unglinga
1 Harpa Sigríður Bjarnadóttir / Gustur frá Margrétarhofi 6.56
2 Arnór Dan Kristinsson / Háfeti frá Þingnesi 6.22
3 Svanberg Óskarsson / Atlas frá Tjörn 6.06
4 Bára Steinsdóttir / Spyrnir frá Grund II 5.5
5 Sigurjón Jónsson / Vísir frá Þóroddsstöðum 4.78
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH